Fræðsluefni Geislavarna

Geislun á Íslandi

Notkun jónandi geislunar á Íslandi er einkum í heilbrigðiskerfinu. Bæði er um að ræða greiningu og meðferð sjúkdóma. Einnig notkun í iðnaði og menntakerfinu svo og á rannsóknastofnunum.

Á Íslandi eru starfrækt um 550 röntgentæki, þar af eru um 370 hjá tannlæknum og um 110 í heilbrigðiskerfinu. Hjá dýralæknum eru um 20 röntgentæki og um 50 tæki eru notuð í iðnaði, efnarannsóknum og við öryggisgæslu. Geislavirk efni eru notuð á um 40 stöðum og tæki með innbyggð geislavirk efni eru um 50. Haft er eftirlit með geislaálagi um 500 starfsmanna, þ.a. eru yfir 400 í heilbrigðiskerfinu

Árlegt geislaálag Íslendinga er um 2,2 mSv. Þar af eru:

  • um 1,1 mSv vegna náttúrulegrar geislunar
  • um 1,0 mSv vegna læknisfræðilegrar notkunar jónandi geislunar
  • um 0,1 mSv vegna geislavirkra efna í umhverfi og matvælum.


Geislun og geislavirkni

Með geislun er hér átt við svokallaða jónandi geislun, en til hennar teljast m.a. röntgen-, gamma-, alfa-, beta- og nifteindageislun. Jónandi geislun hefur verið meginviðfangsefni geislavarna áratugum saman, enda er hún í eðli sínu mun varasamari en svokölluð ójónandi geislun. Um hana er fjallað á síðunni Sól, ljós og rafsegulsvið og til hennar teljast m.a. venjulegt ljós, UV-geislun frá sól og lömpum, örbylgjur og útvarpsbylgjur. Um notkun jónandi geislunar er fjallað á síðunni Notkun geislunar.

Notkun geislunar

Jónandi geislun getur verið varasöm, en af henni má einnig hafa mikið gagn. Hún er m.a. mikið notuð í læknisfræði og iðnaði. Hér er að finna ýmsar upplýsingar fyrir þá sem vinna við jónandi geislun. Sjá einnig almennar upplýsingar á síðunni Geislavirkni, geislun og umhverfi.

Sól, ljós og rafsegulsvið

Sól, ljós og rafsegulsvið flokkast undir svokallaða ójónandi geislun og á þessari síðu er að finna tilvísanir tengdar henni. Um jónandi geislun er hins vegar fjallað á síðunni Geislavirkni, geislun og umhverfi.

Siðan var síðast uppfærð í júní 2009

 

 

Fréttir

9.9.2010 Fréttir : Aukin tíðni sortuæxla tengd ljósabekkjanotkun

Merkar niðurstöður í grein í American Journal of Epidemiology

Lesa meira

 

31.8.2010 Fréttir : 29. ágúst alþjóðlegur dagur gegn tilraunum með kjarnorkuvopn.

Á síðasta ári samþykkti allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna með einróma ályktun að 29. ágúst skyldi verða alþjóðlegur dagur gegn tilraunum með kjarnorkuvopn. Eru aðildarríki þar sérstaklega hvött til að efla vitund fólks og fræðslu um afleiðingar tilraunasprenginga og nauðsyn þess að þeim verði endanlega hætt svo takmarkinu um kjarnorkuvopnalausan heim verði náð. Lesa meira
 

27.8.2010 Fréttir : Segulsvið á Íslandi svipað og í Svíþjóð

Geislavarnir ríkisins og Brunamálastofnun hafa nýlega lokið rannsókn á segulsviði í rúmlega 130 íbúðum. Niðurstöður benda til að segulsviðið í íbúðum á Íslandi sé svipað og í Svíþjóð en frágangur raflagna á Íslandi og í Svíþjóð er sambærilegur. Niðurstöðurnar gefa ekki tilefni til umfangsmeiri rannsókna á segulsviði í íbúðarhúsnæði á Íslandi. Meðaltal segulsviðs mældist um 0,1 µT en algengustu gildi eru um 0,05 µT. Segulsvið yfir 0,4 µT er sjaldgæft og stafar oftast af svokölluðum flökkustraumum. Með einföldum aðgerðum má oftast draga úr þessum straumum. Lesa meira
 

13.8.2010 Fréttir : Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008

Komin er út skýrsla Geislavarna um fjölda myndgreiningarannsókna sem framkvæmdar voru á Íslandi árið 2008. Skýrslan er áfangi í því verkefni stofnunarinnar að meta geislaálag þjóðarinnar vegna notkunar jónandi geislunar í læknisfræði. Lesa meira