Fræðsluefni Geislavarna

Geislun á Íslandi

Notkun jónandi geislunar á Íslandi er einkum í heilbrigðiskerfinu. Bæði er um að ræða greiningu og meðferð sjúkdóma. Einnig notkun í iðnaði og menntakerfinu svo og á rannsóknastofnunum.

Á Íslandi eru starfrækt um 550 röntgentæki, þar af eru um 370 hjá tannlæknum og um 110 í heilbrigðiskerfinu. Hjá dýralæknum eru um 20 röntgentæki og um 50 tæki eru notuð í iðnaði, efnarannsóknum og við öryggisgæslu. Geislavirk efni eru notuð á um 40 stöðum og tæki með innbyggð geislavirk efni eru um 50. Haft er eftirlit með geislaálagi um 500 starfsmanna, þ.a. eru yfir 400 í heilbrigðiskerfinu

Árlegt geislaálag Íslendinga er um 2,2 mSv. Þar af eru:

  • um 1,1 mSv vegna náttúrulegrar geislunar
  • um 1,0 mSv vegna læknisfræðilegrar notkunar jónandi geislunar
  • um 0,1 mSv vegna geislavirkra efna í umhverfi og matvælum.


Geislun og geislavirkni

Með geislun er hér átt við svokallaða jónandi geislun, en til hennar teljast m.a. röntgen-, gamma-, alfa-, beta- og nifteindageislun. Jónandi geislun hefur verið meginviðfangsefni geislavarna áratugum saman, enda er hún í eðli sínu mun varasamari en svokölluð ójónandi geislun. Um hana er fjallað á síðunni Sól, ljós og rafsegulsvið og til hennar teljast m.a. venjulegt ljós, UV-geislun frá sól og lömpum, örbylgjur og útvarpsbylgjur. Um notkun jónandi geislunar er fjallað á síðunni Notkun geislunar.

Notkun geislunar

Jónandi geislun getur verið varasöm, en af henni má einnig hafa mikið gagn. Hún er m.a. mikið notuð í læknisfræði og iðnaði. Hér er að finna ýmsar upplýsingar fyrir þá sem vinna við jónandi geislun. Sjá einnig almennar upplýsingar á síðunni Geislavirkni, geislun og umhverfi.

Sól, ljós og rafsegulsvið

Sól, ljós og rafsegulsvið flokkast undir svokallaða ójónandi geislun og á þessari síðu er að finna tilvísanir tengdar henni. Um jónandi geislun er hins vegar fjallað á síðunni Geislavirkni, geislun og umhverfi.

Siðan var síðast uppfærð í júní 2009

 

 

Fréttir

28.7.2010 Fréttir : Segulsvið frá spennustöðvum og raflögnum

Að undanförnu hafa Geislavörnum ríkisins borist margar fyrirspurnir um segulsvið frá spennustöðvum og raflögnum. Segulsvið með 50 riða tíðni myndast þegar rafstraumur rennur um raftæki og rafmagnsleiðslur.

Lesa meira

 

22.6.2010 Fréttir : Venjuleg farsímanotkun eykur ekki líkur á heilaæxlum

Nýlega voru birtar niðurstöður úr mjög stórri alþjóðlegri rannsókn á notkun farsíma. Samkvæmt henni eykur venjuleg farsímanotkun ekki líkur á myndun heilaæxla. Í rannsókninni kom á óvart að þeir sem alls ekki töluðu í farsíma virtust örlítið líklegri til að fá heilaæxli.

Lesa meira

 

8.6.2010 Fréttir : Hefur orðið breyting á ljósabekkjanotkun grunnskólanema?

Samkvæmt nýrri könnun Capacent-Gallup segjast mun færri grunnskólanemar hafa notað ljósbekki síðustu 12 mánuði en áður. Fækkunin er þó aðallega í hópi þeirra sem nota bekki sjaldan. Lesa meira
 

1.6.2010 Fréttir : Notendur ljósabekkja fara sjaldnar í ljós

Samkvæmt árlegum könnunum Capacent Gallup hefur þeim fækkað verulega sem fara oft í ljósabekki.

Lesa meira