Málmsuđuvír međ 2% ţóríni - frćđsluefni
Í nokkrum vörutegundum er ađ finna geislavirk efni í litlum mćli sem ekki ţarf sérstakt leyfi frá Geislavörnum ríkisins til ađ nota eđa flytja inn. Ţar á međal er rafsuđuvír úr ţungsteini (wolfram-vír/pinni, tungsten-vír/pinni) sem blandađur er geislavirka efninu ţórín og er vírinn notađur í sérstakri málmsuđu sem kölluđ er TIG-suđa.
Um alla málmsuđu gilda reglur Vinnueftirlits ríkisins um varnir gegn loftmengun viđ málmsuđu (nr. 491/1987) en engin sérstök ákvćđi eru um rafsuđu međ vír sem blandađur međ ţóríni.
Í samrćmi viđ ţá almennu reglu ađ forđast beri alla óţarfa geislun er ţađ álit Geislavarna ríkisins ađ nota beri ógeislavirkan vír nema sérstök rök séu fyrir öđru og ávallt skuli nota búnađ sem kemur í veg fyrir ađ ryk eđa reykur sem inniheldur geislavirka efniđ ţórín berist ofan í öndunarfćri manna. Jafnframt skal haga vinnubrögđum ţannig ađ sem minnst ţórínblandađ ryk myndist og berist út í loft á vinnustađ. Sjá nánar grein á vefsíđu Geislavarna ríkisins.