Umsögn Landlæknisembættisins varðandi sólbekki og ljósalampa
Geislun húðarinnar af sól eða frá sólbekkjum og ljósalömpum ("háfjallasól") getur valdið heilsutjóni, ef farið er óvarlega. Það er alkunna, að óhófleg geislun veldur bruna á húð (sólbruna). Langvarandi geislun á sólbaðstofum veldur hrörnun húðar þannig að teygjanleikinn minnkar og hún verður hrukkótt. Margt bendir til að mikil og langvarandi notkun sólbaðstofulampa (UVA-ljós) auki líkurnar á húðkrabba. Mikil geislun sem veldur bruna, bæði í ljósum og í sól, getur aukið hættuna á myndun sortuæxla (melanoma) í húð. Ef gleraugu með fullkominni vörn gegn útfjólubláum geislum eru ekki notuð er hætta á bruna á hornhimnu augna (rafsuðublinda, snjóblinda) og langvarandi áhrif geislanna á augu geta skemmt litarskyn. Sumt fólk, t.d. hvítingjar (albínóar), er afar viðkvæmt fyrir útfjólubláum geislum. Sum læknislyf gera húðina viðkvæmari fyrir útfjólubláum geislum. Dæmi um slíkt eru sum sýklalyf, þvagræsilyf og geðlyf. Vissar snyrtivörur geta einnig gert húðina viðkvæma fyrir ljósum, t.d. sum ilmefni. Þeir sem nota læknislyf ættu að ráðfæra sig við lækni áður en farið er í ljós.