Fræðsluefni Geislavarna

Geislun á Íslandi

Notkun jónandi geislunar á Íslandi er einkum í heilbrigðiskerfinu. Bæði er um að ræða greiningu og meðferð sjúkdóma. Einnig notkun í iðnaði og menntakerfinu svo og á rannsóknastofnunum.

Á Íslandi eru starfrækt um 550 röntgentæki, þar af eru um 370 hjá tannlæknum og um 110 í heilbrigðiskerfinu. Hjá dýralæknum eru um 20 röntgentæki og um 50 tæki eru notuð í iðnaði, efnarannsóknum og við öryggisgæslu. Geislavirk efni eru notuð á um 40 stöðum og tæki með innbyggð geislavirk efni eru um 50. Haft er eftirlit með geislaálagi um 500 starfsmanna, þ.a. eru yfir 400 í heilbrigðiskerfinu

Árlegt geislaálag Íslendinga er um 2,2 mSv. Þar af eru:

  • um 1,1 mSv vegna náttúrulegrar geislunar
  • um 1,0 mSv vegna læknisfræðilegrar notkunar jónandi geislunar
  • um 0,1 mSv vegna geislavirkra efna í umhverfi og matvælum.


Geislun og geislavirkni

Með geislun er hér átt við svokallaða jónandi geislun, en til hennar teljast m.a. röntgen-, gamma-, alfa-, beta- og nifteindageislun. Jónandi geislun hefur verið meginviðfangsefni geislavarna áratugum saman, enda er hún í eðli sínu mun varasamari en svokölluð ójónandi geislun. Um hana er fjallað á síðunni Sól, ljós og rafsegulsvið og til hennar teljast m.a. venjulegt ljós, UV-geislun frá sól og lömpum, örbylgjur og útvarpsbylgjur. Um notkun jónandi geislunar er fjallað á síðunni Notkun geislunar.

Notkun geislunar

Jónandi geislun getur verið varasöm, en af henni má einnig hafa mikið gagn. Hún er m.a. mikið notuð í læknisfræði og iðnaði. Hér er að finna ýmsar upplýsingar fyrir þá sem vinna við jónandi geislun. Sjá einnig almennar upplýsingar á síðunni Geislavirkni, geislun og umhverfi.

Sól, ljós og rafsegulsvið

Sól, ljós og rafsegulsvið flokkast undir svokallaða ójónandi geislun og á þessari síðu er að finna tilvísanir tengdar henni. Um jónandi geislun er hins vegar fjallað á síðunni Geislavirkni, geislun og umhverfi.

Skýrsla um rafsegulmælngar 2010

 

 

Fréttir

4.5.2012 Fréttir : Geislaálag starfsmanna árið 2011 - skýrsla og nýjar leiðbeiningar

Árleg samantekt um geislaálag starfsmanna sem vinna við jónandi geislun er komin út fyrir árið 2011. Skýrslan er aðgengileg á vefsetri stofnunarinnar hér. Þar er einnig að finna eldri skýrslur um geislaálag starfsmanna. Skýrslan er eingöngu gefin út á vefsetri stofnunarinnar. Í skýrslunni er gerð grein fyrir meðalgeislaálagi og hópgeislaálagi einstakra starfsstétta sem verða fyrir jónandi geislun við störf sín og starfsmanna innan tiltekinna starfssviða. Einnig er sýnd þróun í meðalgeislaálagi og hópgeislaálagi undanfarin ár.

Þá hefur stofnunin einnig gefið út nýjar leiðbeiningar um eftirlit með geislaálagi starfsmanna (GR12:02).

Lesa meira
 

2.5.2012 Fréttir : Enn hefur dregið úr ljósabekkjanotkun

Um 15% fullorðinna Íslendinga segjast hafa farið í ljós á síðustu tólf mánuðum, samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup fyrir samstarfshóp um varnir gegn útfjólublárri geislun. Dregið hefur verulega úr ljósabekkjanotkun undanfarin ár. Fyrir átta árum svöruðu 30% sömu spurningu játandi.

Lesa meira
 

25.4.2012 Fréttir : Endurmat á geislavirku úrfelli í kjölfar kjarnorkusprenginga - vísindagrein

Vísindaritið Journal of Environmental Radioactivity hefur birt grein um niðurstöður rannsóknar sem Geislavarnir ríkisins eiga aðild að. Rannsóknin er hluti doktorsverkefnis eins starfsmanns stofnunarinnar, Sigurðar Emils Pálssonar og fjallar hún um hvernig best megi lýsa með sem einföldustum hætti því geislavirka úrfelli sem dreifðist um jörðina vegna kjarnorkusprengjutilrauna í andrúmsloftinu. Þetta úrfelli er helsta uppspretta manngerðra geislavirkra efna í umhverfinu. Þekking á því er undirstaða rannsókna á hegðun slíkra efna og einnig ef meta skal hugsanlegar afleiðingar slyss sem leiðir til þess að þessi efni dreifast að nýju til umhverfis. Lesa meira
 

17.4.2012 Fréttir : Breytingar á eftirliti með geislaálagi starfsmanna

Eftirlit með geislaálagi þeirra starfsmanna sem vinna við jónandi geislun á Íslandi breytist frá og með 1. júlí nk. þannig að Geislavarnir ríkisins munu hefja notkun á svokölluðum TLD-mælihylkjum í staðinn fyrir mælihylki sem byggjast á notkun geislamælifilma. Ein helsta ástæðan fyrir breytingunum er sú að Eastmann Kodak fyrirtækið er að hætta framleiðslu þessara mælifilma, en þær hafa verið í notkun svo til óbreyttar í áratugi. Nýju mælihylkin sem byggjast á notkun TLD mæliflaga eru fengin frá Dönsku Geislavarnastofnuninni ( Statens Institute for Stålebeskyttelse ? SIS), sem sér um hluta framkvæmdarinnar. Lesa meira