Fréttir
Geislavarnanámskeið haustið 2005
Geislavarnir bjóða nú í haust upp á tvö námskeið í samstarfi við Endurmenntunarstofnun HÍ.
Fyrra námskeiðið (206H05) heitir Ábyrgðarmenn röngentækja og geislavarnir og verður haldið laugardaginn 10. september kl. 9:00 - 16:00.
Seinna námskeiðið (208H05) nefnist Geislavarnir og viðhald röntgentækja og verður haldið laugardaginn 15. október kl. 9:00 -18:00.
Ábyrgðarmenn röntgentækja og geislavarnir
Laugardaginn. 10. sept. kl. 9:00-16:00.
Í lögum um geislavarnir (nr. 44/2003) er sú skylda lögð á eigendur röntgentækja að skipa ábyrgðarmann vegna notkunar þeirra í læknisfræðilegri myndgreiningu. Ábyrgðarmaður skal uppfylla skilyrði sem fram koma í lögunum og reglugerðum nr. 626/2003 og 640/2003. Námskeiðið er ætlað þeim starfsmönnum sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva, læknastofa og annarra fyrirtækja sem hafa verið skipaðir eða stendur til að skipa sem ábyrgðarmenn vegna notkunar á röntgentækjum við sjúkdómsgreiningu. Markmið námskeiðsins er að tryggja viðeigandi þekkingu þeirra á geislun og geislavörnum í læknisfræðilegri myndgreiningu.
Þátttaka í þessu námskeiði eða sambærileg þekking er skilyrði til þess að öðlast viðurkenningu.
Kennsluefni er miðað við að veita þátttakendum innsýn inn í grundvallaratriði geislavarna vegna notkunar jónandi geislunar í læknisfræði, ásamt því að gera þá hæfa til þess að bera ábyrgð á allri notkun röntgentækja á sínum vinnustað. Helstu efnisatriði eru: Lagagrunnur geislavarna, grundvallar leiðbeiningar ICRP, geislaeðlisfræði, rekstrarkröfur og gæðaeftirlit notenda (röntgenbúnaður og mælitækni), grundvallaratriði í röntgenmyndgerð, þróun geislaálags sjúklinga á Íslandi og verkleg myndgerð.
Skráning á vefsíðu EHÍ - Námskeiðsnúmer: 206H05
Geislavarnir og viðhald röntgentækja
Laugardaginn 15. október, kl: 9:00 -18:00.
Í 20. grein laga nr. 44/2002, um geislavarnir er kveðið á um að þeir einir sem uppfylla kröfur Geislavarna ríkisins um þekkingu og reynslu mega annast viðgerðir, uppsetningar og breytingar á geislatækjum sem gefa frá sér jónandi geislun. Námskeiðið er ætlað þeim starfsmönnum tæknideilda sjúkrahúsa og fyrirtækja sem starfa við uppsetningar, viðgerðir, viðhald og breytingar á tækjum sem gefa frá sér jónandi geislun, þ.e. röntgentæki sem notuð eru í læknisfræðilegri myndgerð og lækningum, svo og tækjum sem innihalda eða nota geislavirk efni. Námskeiðið er einnig mikilvæg upprifjun fyrir þá aðila sem nú þegar hafa hlotið þessa viðurkenningu.
Þátttaka í þessu námskeiði eða sambærileg þekking er skilyrði til þess að öðlast viðurkenningu Geislavarna ríkisins vegna ofangreinds lagaákvæðis.
Kennsluefni er miðað við að veita þátttakendum innsýn inn í grundvallaratriði geislavarna vegna notkunar jónandi geislunar í læknisfræði, ásamt því að gera þá hæfa til þess að bera ábyrgð á viðgerðum, breytingum og uppsetningum á geislatækjum. Helstu efnisatriðið eru: Saga geislavarna, lagagrunnur geislavarna, grundvallar leiðbeiningar ICRP, geislaeðlisfræði, hugtök og einingar geislavarna, rekstrarkröfur og gæðaeftirlit notenda, (röntgenbúnaður, geislatæki og geislavirk efni, mælitækni), þróun geislaálags á Íslandi og verklegar samanburðamælingar.
Skráning á vefsíðu EHÍ - Námskeiðsnúmer: 208H05