Fréttir

Forstjóri Geislavarna ríkisins verđur nćsti stjórnarformađur NKS

24.11.2005

Stjórn Norrćnna kjarnöryggisrannsókna ( Nordisk kernsikkerhedsforskning, NKS) hélt fund í Reykjavík ţann 17. nóvember 2005. Á fundinum voru samţykktar tillögur Sigurđar M. Magnússon, forstjóra Geislavarna ríkisins um hagrćđingu og sparnađ í rekstri NKS samhliđa auknum fjárveitingum til rannsókna. Jafnframt var ákveđiđ ađ Sigurđur M Magnússon verđi stjórnarformađur NKS frá miđju ári 2006 og er ţađ í fyrsta skipti sem Íslendingur gegnir ţví hlutverki.

NKS er samstarfsvettvangur norrćnna geislavarna- og kjarnorkueftirlitsstofnana um rannsóknir sem varđa öryggi kjarnaofna, viđbúnađ og geislavistfrćđi.

Geislavarnir ríkisins taka virkan ţátt í verkefnum styrktum af NKS. Verkefnin skiptast í tvö meginsviđ:

  • öryggi í kjarnorkuiđnađi
  • geislunarviđbúnađur og rannsóknir í geislavistfrćđi

Sigurđur Emil Pálsson, sviđstjóri hjá Geislavörnum, stýrir síđara sviđinu.

Á fundinum var m.a. úthlutađ rúmlega 40 milljónum króna í rannsóknastyrki en fjárhagsrammi samstarfsins á árinu 2006 verđur um 80 milljónir króna.

Framlag Geislavarna ríkisins til NKS á árinu 2005 nemur um 1.6 milljónum króna en greiđslur NKS til Geislavarna á árinu nema um 6 milljónum króna.

Nánari upplýsingar um starfsemi NKS má finna á heimasíđunni: http://www.nks.org/
eđa hjá Sigurđi M. Magnússyni / Sigurđi Emil Pálssyni, sími 552 8200.