Fréttir
Varađ viđ ljósabekkjanotkun fermingarbarna
Á póstkortinu er vakin athygli á ţví ađ börn og unglingar séu nćmari en ađrir fyrir skađlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól. Bent er á ađ tíđni húđkrabbameins hafi aukist mikiđ á síđustu árum, einkum tíđni svonefndra sortućxla, en ţau eru alvarlegasta tegund húđkrabbameins og algengasta tegund krabbameins hjá konum á aldrinum frá 15 til 34 ára. Foreldrar og forráđamenn fermingarbarna eru hvattir til ađ hafa í huga tilmćli alţjóđastofnana um ađ börn og unglingar fari ekki í ljósabekki.
Í samvinnu viđ Biskupsstofu hefur veriđ leitađ til presta landsins um ađ leggja málefninu liđ og dreift hefur veriđ veggspjöldum sem hengd verđa upp ţar sem fermingarfrćđsla fer fram.
Í kjölfar frćđsluherferđanna síđustu tvö ár hefur dregiđ verulega úr ljósabekkjanotkun ungs fólks og nokkrar sveitarstjórnir hafa hćtt ađ bjóđa upp á sólböđ í ljósabekkjum í íţróttamannvirkjum sínum. Međ herferđinni nú er stefnt ađ ţví ađ draga enn frekar úr ljósabekkjanotkuninni međ ţví ađ minna á áhćttuna.
Samkvćmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Krabbameinsfélagsins greinast ađ međaltali 45 manns á ári međ sortućxli í húđ, 45 međ önnur húđćxli og um 170 manns međ svonefnd grunnfrumućxli í húđ. Tíđni húđćxla í heild hefur tvöfaldast á síđustu tíu árum.
Frétt frá Félagi íslenskra húđlćkna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu og Landlćknisembćttinu.
Veggspjald (pdf)
Póstkort (pdf)
Tengt frćđsluefni: Spurningar og svör um húđina