Fréttir
Fréttabréf European ALARA Network komið út
EAN ? European ALARA Network (http://www.eu-alara.net ). Um er að ræða samstarfsnet hagsmunaaðila sem vinna við eða með jónandi geislun í Evrópu, bæði í læknisfræði, iðnaði og í kjarnorkuiðnaði. Netið var upphaflega fjármagnað með rannsóknarstyrkjum frá Evrópusambandinu, en seinni árin er það fjármagnað með styrkjum frá þátttökuþjóðum og sjálfsaflafé. Markmið þess er að stuðla að rannsóknum sem snúa að bestun í tengslum við geislaálag starfsmanna á öllum sviðun notkunar jónandi geislunar og með dreifingu upplýsinga um bestu vinnubrögð og aðferðir - ?good practices?.
Árleg markmið EAN er m.a. að gefa út fréttarit a.m.k. einu sinni á ári (er á vefsíðunni) og skipuleggja vinnubúðir (workshop) þar sem fjallað er um tiltekna efnisflokka. Síðustu vinnubúðir voru haldnar í Prag í Tékklandi í september 2006.
ALARA er skammstöfun fyrir ?As Low As Reasonably Achievable?, sem er eitt af grunnhugtökum um geislavarnir og bestun (optimisation).
EAN er rekið af Kjarnorkurannsóknarmiðstöðinni CEPN í Frakklandi.