Fréttir
Það er hættulegt að horfa í sólina og venjuleg sólgleraugu duga ekki
Nethimna augans getur skaðast
Laugardaginn 31. maí 2003 var sólmyrkvi á Íslandi um kl. 04 (sjá: http://www.almanak.hi.is/myrkv03.html) Tunglið þakti um 88% af yfirborði sólar þegar mest er. Það er hættulegt að horfa á sólina vegna þess að nethimna augans getur skaðast. Venjulega er sólin svo sterk að erfitt er að horfa í hana og þess vegna eru skaðar vegna þess fátíðir. Í sólmyrkva er ekki eins bjart en engu að síður er ljósið nógu sterkt til að valda tjóni. Notið þess vegna alltaf hlífar. Á vefsíðu sænsku geislavarnanna (sjá www.ssi.se) er t.d. stungið upp á að horft sé á sólmyrkvann í gegnum CD- geisladisk sem ekki er með merkimiða á allri hliðinni. Notið þá geisladisk sem seldur er í búðum undir tónlist eða forrit en ekki geisladiska sem hægt er að nota í geisladiskabrennara þar sem þeir veita ekki nægilega vörn. Logsuðugleraugu DIN 10 eða meira eru nothæf en venjuleg sólgleraugu alls ekki.