Fréttir

13.12.2005 Fréttir : Vefur Geislavarna kemur vel út í úttekt á vefjum ríkisstofnana og sveitarfélaga

Að úttektinni standa forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Í frétt um niðurstöður úttektarinnar á vef forsætisráðuneytisins kemur fram að sex stofnanir bjóða upp á rafræna málsmeðferð. Vefur Geislavarna var þannig bæði á lista yfir þær 10 stofnanir sem fengu hæstu einkunn fyrir nytsemi og fyrir aðgengi.
 

29.11.2005 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2004

Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu með niðurstöðum mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi. Einnig eru birtar niðurstöður mælinga á teknetíni í sjó við Ísland frá 2003-2004. Styrkur efnanna er í öllum tilvikum vel innan marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna, „Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2004 “ má nálgast hér á PDF formi.
 

24.11.2005 Fréttir : Forstjóri Geislavarna ríkisins verður næsti stjórnarformaður NKS

Stjórn Norrænna kjarnöryggisrannsókna ( Nordisk kernsikkerhedsforskning, NKS) hélt fund í Reykjavík þann 17. nóvember 2005. Á fundinum voru samþykktar tillögur Sigurðar M. Magnússon, forstjóra Geislavarna ríkisins um hagræðingu og sparnað í rekstri NKS samhliða auknum fjárveitingum til rannsókna. Jafnframt var ákveðið að Sigurður M Magnússon verði stjórnarformaður NKS frá miðju ári 2006 og er það í fyrsta skipti sem Íslendingur gegnir því hlutverki.
 

17.11.2005 Fréttir : Norræn ráðstefna um geislavistfræði og mælitækni í Tartu í Eistlandi

Einn starfsmanna Geislavarna ríkisins, Sigurður Emil Pálsson, hefur haft yfirumsjón með norrænum verkefnum á sviði geislavistfræði og viðbúnaðar undanfarin 4 ár. Á þessum tíma hafa mörg verkefni verið unnin og sumum þeirra stærri verður lokið fljótlega eða er verið að ljúka nú. Af þessu tilefni var haldin ráðstefna í Tartu í Eistlandi þar sem kynntar voru helstu niðurstöður verkefna á sviði geislavistfræði og mælitækni tengd henni.
 

1.11.2005 Fréttir : Norrænt samstarf um geislamælifræði

Dagana 27. og 28.október var haldinn á Íslandi norrænn fundur vinnuhóps um geislamælifræði (e. dosimetry). Geislavarnir ríkisns munu á næstunni taka virkan þátt í þessu samstarfi norrænna geislavarnastofnana.
 

25.10.2005 Fréttir : Milliríkjasamningur milli Íslands og CTBTO

Milliríkjasamningur var undirritaður 13. október sl. milli Íslands og CTBTO (Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organisation, alþjóðastofnun um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn). Hann festir í sessi samskipti CTBTO og Íslands vegna starfsemi stofnunarinnar á Íslandi, sem felur m.a. í sér stöðuga vöktun á gammageislandi efnum í andrúmslofti.
 

18.10.2005 Fréttir : Niðurstaða atkvæðagreiðslu um ljósabekkjastaðal

Í frétt á vefsíðu Geislavarna þann 19. september og í fréttaskýringagrein Morgunblaðsins 24. september var sagt frá fyrirhugaðri evrópskri atkvæðagreiðslu um breytingar á ljósabekkjastaðal sem notaður er á Íslandi. Niðurstöður liggja nú fyrir.
 

5.10.2005 Fréttir : Ný skýrsla: Geislavirk efni í umhverfi og matvælum á Íslandi 1989 – 2003.

Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu með niðurstöðum mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi. Einnig eru teknar saman niðurstöður mælinga á teknetíni í sjó við Ísland. Bæði efnin, sesín og teknetín, myndast við nýtingu kjarnorku. Styrkur efnanna er í öllum tilvikum vel innan marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna, „Geislavirk efni í umhverfi og matvælum 1989-2003“ má nálgast hér í heild sinni á PDF formi.
 

26.9.2005 Geislun og geislavirkni : Málmsuðuvír með 2% þóríni - fræðsluefni

Fræðslefni um málmsuðuvír sem inniheldur lítið magn geislavirks efnis hefur verð sett á vefsíðu Geislavarna ríkisins
 

20.9.2005 Fréttir : Einum sérfræðinga Geislavarna ríkisins boðin seta í sérfræðinganefnd IAEA um stefnumótun í notkun fjarskiptatækni.

Einum af sérfræðingum Geislavarna ríkisins, Sigurði Emil Pálssyni, hefur verið boðið að sitja í sérfræðinganefnd IAEA (Alþjóða kjarnorku­málastofnunarinnar) um stefnumótun í notkun fjarskipta­tækni vegna miðlunar upplýsinga í tengslum við ýmis konar geislavá. Sérfræðinga­nefndin hélt fyrsta fund sinn í Zürich í síðustu viku, 14.-16. september, og henni er ætlað að leggja skýrslu sína fyrir alþjóðlega ráðstefnu viðbúnaðar­tengla IAEA sumarið 2007.
 

13.9.2005 Fréttir : Breytingar á evrópskum staðli um ljósabekki – viðbrögð á Íslandi

Tillögur hafa verið gerðar um breytingar á evrópskum staðli um ljósabekki. Nái þær fram að ganga, þá gæti það þýtt að meiri styrkur UV-geislunar yrði leyfilegur í ljósabekkjum. Það væri í andstöðu við sameiginlegt álit norrænu geislavarnastofnananna um ljósabekki. Geislavarnir ríkisins munu fylgjast með þessu máli, en of snemmt er að segja til um hugsanleg viðbrögð.
 

6.9.2005 Fréttir : Ný skýrsla á vegum Sameinuðu þjóðanna um áhrif slyssins í kjarnorkuverinu í Tsjernóbýl

Nú stendur yfir alþjóðleg ráðstefna í Vínarborg um áhrif slyssins í kjarnorkuverinu í Tsjernóbýl 1986. Ný skýrsla 8 stofnana Sameinuðu þjóðanna var kynnt í tilefni ráðstefnunnar og þar kemur fram að nú megi rekja tæp 50 dauðsföll beint til slyssins og að áætla megi að um 4000 manns muni látast vegna langtímaáhrifa geislunar. Þetta eru lægri tölur en oft hafa verið nefndar, en þó í samræmi við mat ýmissa vísindamanna strax í upphafi. Slysið hefur þó haft víðtæk önnur heilsufars-, félagsleg- og efnahagsleg áhrif.

 

5.9.2005 Fréttir : Niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar um langtímanotkun farsíma

Nýlega birtust í tímaritunu British Journal of Cancer, niðurstöður úr alþjóðlegum rannsóknum á sambandi milli langtímanotkunar á farsímum og hættu á myndun acoustic neuroma (hjúpæxli heyrnartaugar) sem er sjaldgæft góðkynja æxli í heyrnartaug.
 

30.8.2005 Fréttir : Ný kynslóð bjartra leysa og leysibenda

Framfarir í gerð leysidíóða hafa orðið til þess að æ fleiri tæki eru nú komin á markað sem nýta slíkar díóður, t.d. leysibendar. Leysibendar með rauðu ljósi hafa verið á markaði í um áratug, en nú eru komnir á markað leysibendar með grænu ljósi (bylgjulengd 532 nm). Augað er mun næmara fyrir grænu ljósi en rauðu og því virðist ljós frá grænum leysibendi meir en 10x bjartara en rauðum með sama afl. Leysibendar eru missterkir og óvarleg notkun sterkra leysibenda getur verið varasöm og þeir eru engin leikföng. Hér eru því birt ráð til þeirra sem hyggjast kaupa leysibenda eða önnur tæki sem senda frá sér leysigeisla.

 

8.8.2005 Fréttir : Geislavarnanámskeið haustið 2005

Geislavarnir bjóða nú í haust upp á tvö námskeið í samstarfi við Endurmenntunarstofnun HÍ.

Fyrra námskeiðið (206H05) heitir Ábyrgðarmenn röngentækja og geislavarnir og verður haldið laugardaginn 10. september kl. 9:00 - 16:00.
Seinna námskeiðið (208H05) nefnist Geislavarnir og viðhald röntgentækja og verður haldið laugardaginn 15. október kl. 9:00 -18:00.

Nánari upplýsingar um námskeið og skráningu.

 

15.7.2005 Fréttir : Áhrif ljóss á augað - fræðsluefni

Grein um áhrif ljóss á augað hefur verið sett á vefsíðu Geislavarna ríkisins

 

6.7.2005 Fréttir : Ný rannsókn frá IARC (krabbameinsrannsóknastofnun WHO) tengir aukna en litla geislun við litla en aukna tíðni krabbameina

Breska læknaritið BMJ (British Medical Journal) birti 29. júní niðurstöður mjög fjölmennrar rannsóknar í mörgum löndum á áhrifum lítillar geislunar. Niðurstöður renna stoðum undir gildandi forsendur geislavarna, að lítil geislun geti aukið lítillega hættu á krabbameini.

 

27.6.2005 Fréttir : Geislavirkar úrskífur og radín á Íslandi

Framyfir 1950 tíðkaðist að gera úrskífur sjálflýsandi með því að nota málningu sem innihélt geislavirka efnið radín (Ra-226). Nýlega fengu sérfræðingar stofnunarinnar úr með slíkri skífu til greiningar og gerðu um það skýrslu sem sett hefur verið á vefsíðu stofnunarinnar sem fræðsluefni.
 

Skoða eldri fréttir