Vefsíða um geislavarnir og myndgæði (DIMOND)
Fyrirlestur um breyttar áherslur í geislavörnum, mánudaginn 24. janúar, n.k. kl. 17:15
Vísindaritari Alþjóða geislavarnaráðsins (International Commission on Radiological Protection, ICRP) Dr. Jack Valentin, heldur fyrirlestur um breyttar áherslur og nýjar grunnleiðbeiningar ICRP í húsi Verfræði- og raunvísindadeildar, VR II, stofu 158, mánudaginn 24. janúar 2005, kl. 17:15. Fyrirlesturinn sem verður á ensku er öllum opinn.
Farsímar og heilsufar - ný skýrsla frá Bretlandi.
Geislavarnastofnun Bretlands hefur gefið út nýja yfirgripsmikla skýrslu um farsíma og heilsufar. Sjá nánar á vef stofnunarinnar, þar er finna tengil í útdrátt skýrslunnar og hana í heild sinni.