Fréttir

25.4.2005 Fréttir : Íslenskar niðurstöður kynntar á norrænum fundi vinnuhóps um geislavistfræði

Geislavarnir ríkisins hafa síðan árið 2002, tekið þátt í samnorrænu rannsóknarverkefni í geislavistfræði. Megintilgangur verkefnisins er að finna heppilegar lífverur til að mæla styrk og meta tilfærslu geislavirkra efna í umhverfinu, s.k. vísitegundir. Íslenskar niðurstöður voru kynntar og ræddar á ársfundi verkefnisins í Osló 18. – 19. apríl 2005.

 

18.4.2005 Fréttir : Norrænar og alþjóðlegar ráðstefnur um geislavarnir og tengd málefni

Á norrænum og alþjóðlegum vettvangi eru margar ráðstefnur á döfinni, þar sem fjallað er um geislavarnir og tengd málefni. Hér eru gefnir upp tenglar á heimasíður nokkurra slíkra.
 

11.4.2005 Fréttir : Fáar sterkar geislalindir á Íslandi

Samanburður milli Norðurlanda sýnir að miðað við fólksfjölda eru fáar sterkar geislalindir á Íslandi. Tilefni þessa samanburðar er að Evrópusambandið hefur nýlega sett fram tilskipun um meðferð geislalinda sem hafa mikið magn af geislavirkum efnum.

 

6.4.2005 Fréttir : Formennska Íslands í geislavarnanefnd Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA)

Sigurður M Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins, hefur að ósk IAEA tekið að sér formennsku í ráðgjafanefnd stofnunarinnar um öryggisstaðla vegna geislavarna fyrir tímabilið 2005 – 2008, jafnframt hefur hann tekið sæti í yfirnefnd IAEA um öryggisstaðla.
 

6.4.2005 Fréttir : Útvarpsþættir BBC um notkun kjarnorku og jónandi geislunar í nútíma þjóðfélagi

Breska útvarpsstöðin BBC World Service er um þessar mundir að flytja röð þátta um notkun kjarnorku og jónandi geislunar í nútíma þjóðfélagi, kosti þessarar notkunar og galla. Hlusta má á eldri þætti á Vefnum. Í þáttunum hefur m.a. verið rætt við Dr. Brendu Howard sem leiðandi sérfræðing í geislavistfræði, en Geislavarnir ríkisins eiga náið samstarf við hana um rannsóknir á hegðun geislavirka efna í íslenskri náttúru. Fimmtudaginn 7. apríl verður fjallað um nýtingu kjarnorku.
 

Skoða eldri fréttir