Fréttir

27.6.2005 Fréttir : Geislavirkar úrskífur og radín á Íslandi

Framyfir 1950 tíðkaðist að gera úrskífur sjálflýsandi með því að nota málningu sem innihélt geislavirka efnið radín (Ra-226). Nýlega fengu sérfræðingar stofnunarinnar úr með slíkri skífu til greiningar og gerðu um það skýrslu sem sett hefur verið á vefsíðu stofnunarinnar sem fræðsluefni.
 

21.6.2005 Fréttir : Ný mælitæki á eftirlitssviði Geislavarna ríkisins

Geislavarnir ríkisins hafa nýlega eignast tvo mæla til að meta hlutgeislaálag á útlimi og einnig hefur stofnunin eignast tvo mæla til að meta rafsegulsvið frá GSM símum og frá háspennulínum. Nýjasta viðbótin er mælir til að meta útfjólubláa geislun í ljósabekkjum.
 

14.6.2005 Fréttir : Ný bresk rannsókn: „Engar vísbendingar um að nálægð við kjarnorkuver auki hættu á krabba“ (Fyrirsögn af fréttavef Morgunblaðsins).

Á fréttavef Morgunblaðsins föstudaginn 10.6 var greint frá ítarlegri rannsókn á því hvort búseta í grennd við kjarnorkuver þýddi meiri áhættu á krabbameini hjá börnum. Niðurstaðan var að svo væri ekki. Hér er greint nánar frá rannsókninni og bakgrunni hennar.
 

9.6.2005 Fréttir : Geislavarnir vinna Geislabikarinn í keilukeppni

Átta manna lið Geislavarna ríkisins vann lið Hjartaverndar í keilukeppni þann 18. maí síðastliðinn og fékk þar með bikar til varðveislu og áskorendarétt.
 

Skoða eldri fréttir