Fréttir

12.12.2006 Fréttir : Fræðsla um notkun og flutninga tækja sem innihalda geislavirk efni

Geislavarnir ríkisins stóðu nýlega fyrir tveimur fræðslufundum um notkun tækja sem innihalda geislavirk efni (lokaðar geislalindir) í iðnaði og hjá verktökum. Báðir þessir fundir tókust vel að mati þátttakenda og var nærri full þátttaka í báðum fundum. Á fundinum voru einnig kynntar leiðbeiningar sem auðvelda að uppfylla kröfur varðandi flutning tækja með geislavirkum efnum og hafa þær verið settar á vef stofnunarinnar.

 

27.11.2006 Fréttir : Pólon-210 notað sem morðvopn? - Uppfærð frétt

Síðdegis á föstudaginn var skýrt frá því að niðurstöður rannsókna bentu til að stór skammtur af geislavirka efninu pólon-210 hafi orðið fyrrum njósnara rússnesku leyniþjónustunnar KGB, Alexander Litvinenko, að bana. Geislavarnir ríkisins hafa fengið fyrirspurnir um þetta efni og hættu af þess völdum. Stofnunin birti því frétt um þetta á vefsíðu sinni á föstudaginn, hér er fréttin endurbirt með uppfærðum upplýsingum.

 

24.11.2006 Fréttir : Pólon-210 notað sem morðvopn?

Síðdegis í dag var skýrt frá því að niðurstöður rannsókna bentu til að stór skammtur af geislavirka efninu pólon-210 hafi orðið fyrrum njósnara rússnesku leyniþjónustunnar KGB, Alexander Litvinenko, að bana. Geislavarnir ríkisins hafa fengið fyrirspurnir um þetta efni og hættu af þess völdum. Stofnunin hefur því tekið saman upplýsingar um þetta.
 

23.11.2006 Fréttir : Of mikil geislun við geislameðferð. Vefsetur IAEA

Skýrslur um ástæður of mikillar geislunar á sjúklinga við geislameðferð í Frakklandi og Bretlandi á þessu ári hafa verið birtar á vefsetri IAEA. Í Frakklandi var helsta ástæða ofgeislunar rakin til lélegrar þjálfunar starfsmanna á viðkomandi búnaði og til galla í hugbúnaði. Í Skotlandi var fyrst og fremst um mannleg mistök að ræða sem rakin eru til ófullnægjandi menntunar starfsmanns og þess að gæðakerfi viðkomandi stofnunar hafi ekki verið nægilega gott.
 

14.11.2006 Fréttir : Eldur slökktur í sænsku kjarnorkuveri

Eldur braust út skömmu eftir miðnætti í nótt í Ringhals kjarnorkuverinu í Svíþjóð. Slökkviliði hafði tekist að ráða niðurlögum eldsins um tvöleytið í nótt.
 

7.11.2006 Fréttir : Fjölþjóðleg samskiptaæfing í umsjá Geislavarna

Hinn 23. október sl. stóðu Geislavarnir fyrir samskiptaæfingu meðal aðildarríkja Eystrasaltsráðsins
 

3.11.2006 Fréttir : Styrkir fyrir unga vísindamenn

Í frétt Geislavarna þann 25.9 var sagt frá ráðstefnu á vegum NKS fyrir unga vísindamenn í geislaeðlisfræði, geislaefnafræði, geislavistfræði, geislavörnum og tengdum greinum. Ráðstefnan er haldin í Helsinki 14.-15. desember. Ferðastyrkir eru í boði fyrir þá sem eru reiðubúnir að kynna starf sitt og rannsóknir. Umsóknarfrestur hefur nú verið framlengdur til mánudagsins 20. nóvember. Ráðstefnan er dýrmætt tækifæri til að komast í nánari tengsl við norræna starfsfélaga á þessum sviðum.
 

24.10.2006 Fréttir : Geislavarnir veita alþjóðastofnun tæknilega aðstoð

Geislavarnir ríkisins hafa áralanga reynslu af rekstri sjálfvirkrar mælistöðvar fyrir gammageislandi svifagnir í andrúmslofti. Nýverið annaðist starfsmaður Geislavarna endurbætur á slíkri stöð á Svalbarða og þjálfaði jafnframt notendur hennar að beiðni CTBTO.
 

18.10.2006 Fréttir : Geislavarna ríkisins taka þátt í umfangsmikilli sænskri viðbúnaðaræfingu

Tveir starfsmanna Geislavarna ríkisins tóku þátt í umfangsmikilli viðbúnaðaræfingu, DEMOEX, í Svíþjóð, 30. september - 5. október. Æfð var leit og greining á geislavirkum efnum á vettvangi, þar sem líkt var eftir því að efnin hefðu týnst eða verið dreift af ásetningi. Við sviðsetningu var miðað við atburði sem hafa gerst eða a.m.k. verið skipulagðir.
 

9.10.2006 Fréttir : Nýtt vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur frá árinu 2001 aukið starfsemi sína á sviði geislavarna við læknisfræðilegra myndgreiningu. Markmiðið er að auka öryggi og árangur myndgreiningar. Á stjórnarfundi IAEA árið 2003 var samþykkt starfsáætlun, og eitt af þeim verkefnum sem þar kom fram var að setja á fót vefsetur um geislavarnir sjúklinga.
 

3.10.2006 Fréttir : Framfarir í ljóstækni

Nýjar ljósdíóður hafa margvísleg áhrif
 

25.9.2006 Fréttir : NKS ráðstefna fyrir unga vísindamenn

Ráðstefna á vegum NKS fyrir unga vísindamenn í geislaeðlisfræði, geislaefnafræði, geislavistfræði, geislavörnum og tengdum greinum. Ráðstefnan er haldin í Helsinki 14.-15. desember. Ferðastyrkir er í boði fyrir þá sem eru reiðubúnir að kynna starf sitt og rannsóknir, umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 15. október.

 

20.9.2006 Fréttir : Námskeið um Mælifræði geislavarna

Geislavarnir ríkisins og Endurmenntunarstofnun Háskólans standa fyrir námskeiði um mælifræði geislavarna þann 11. október. Margs konar mælistærðir eru notaðar til að lýsa jónandi geislun (t.d. röntgengeislun) og áhrifum hennar. Sumar þeirra lýsa beint eðlisfræðilegum þáttum, aðrar líffræðilegum afleiðingum og byggja þá á ákveðnum forsendum. Markmið námskeiðsins er að skýra samhengi þessara stærða og hvernig megi mæla þær.  Meðal fyrirlesara er virtur sænskur vísindamaður á þessu sviði.
 

9.9.2006 Fréttir : Bilun í tilraunakjarnakljúf í Noregi ? engin geislavirkni slapp til umhverfis

Tilkynning barst í morgun frá Geislavarnastofnun norska ríkisins (NRPA) um að bilun hafi orðið í kjarnakljúf í Kjeller í Noregi. Bilunin virðist hafa leitt til þess að geislavirk efni hafi sloppið út úr hringrás kjarnakljúfsins, en þau sluppu ekki út úr byggingunni enda hún hönnuð til að geta fangað töluverðan leka frá kljúfnum.  Íbúar í grenndinni voru því ekki í hættu.  Þetta atvik er þó viss álitshnekkir fyrir rannsóknastofnunina sem rekur kjarnakljúfinn og NRPA hefur gert kröfu um það að kljúfurinn verði ekki ræstur að nýju fyrr en komist hafi verið fyrir rætur þessarar bilunar og viðeigandi ráðstafnir gerðar.

 

7.9.2006 Fréttir : Eldsvoði í rússneskum kafbát ? geislavirk efni sluppu ekki út

Tilkynning barst í morgun um eldsvoða í rússneskum kjarnorkukafbáti við norðurströnd Kólaskaga. Í fréttum af slysinu kemur fram að tveir menn hafi farist. Einnig kemur fram að öryggiskerfi bátsins hafi virkað rétt, lokað fyrir kjarnaofn bátsins og hindrað að geislavirk efni bærust út í umhverfið. Mælingar á geislun í Noregi benda einnig til hins sama, engin aukning geislunar var greinanleg. Geislavarnir ríkisins hafa í samstarfi við norrænar systurstofnanir fylgst með slysinu og munu gera svo áfram.
 

22.8.2006 Fréttir : Norrænt samstarf um geislavarnir í læknisfræðilegri myndgreiningu

Fulltrúar norrænna geislavarnastofnana funduðu í Reykjavík dagana 17. til 18. ágúst
 

14.8.2006 Fréttir : Evrópusambandið varar áhættuhópa við ljósabekkjum vegna álits vísindanefndar

Í sumar skilaði vísindanefnd Evrópusambandsins af sér áliti um ljósabekki. Nefndin telur að ljósabekkjanotkun auki líkur á húðkrabbameini. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill að farið verði eftir ráðleggingum nefndarinnar.
 

8.8.2006 Fréttir : Bilun í sænsku kjarnorkuveri leiðir til víðtækrar rannsóknar á öryggi rafkerfa kjarnorkuvera

Rafmagnstruflanir leiddu nýlega til þess að í ljós komu veilur í öryggisbúnaði tveggja sænskra kjarnorkuvera. Öryggiskröfur í kjarnorkuiðnaði, svipað og í flugrekstri, eru mjög strangar. Þótt ekki hafi verið hætta á alvarlegu slysi, þá lítur sænska kjarnorkueftirlitið (SKI) þetta atvik mjög alvarlegum augum og vinnur að því, í samvinnu við rekstraraðila og framleiðendur búnaðar, að komast að raun um hvernig þetta gat gerst.
 

26.7.2006 Fréttir : Norrænt samstarf á sviði geislavistfræði og viðbúnaðar gegn geislavá undir stjórn rannsóknastjóra Geislavarna ríkisins

Niðurstöður norrænnar samvinnu undanfarin 4 ár á sviði geislavistfræði, viðbúnaðar gegn geislavá og kjarnorkuöryggismála voru kynntar 10-11 maí á ráðstefnu NKS í Finnlandi. Sigurður Emil Pálsson, rannsóknastjóri Geislavarna ríkisins, hefur haft yfirumsjón með verkefnum á sviði geislavistfræði og geislaviðbúnaðar. Á ráðstefnunni voru einnig kynntar skýrslur verkefnanna, en þær eru fáanlegar ókeypis á Netinu.
 

18.7.2006 Fréttir : Ný skýrsla um geislaálag starfsmanna fyrir árið 2005, GR06:01

Út er komin árleg samantekt á geislaálagi starfsmanna sem vinna við jónandi geislun á Íslandi. Í skýrslunni er gerð grein fyrir þessum þætti í starfsemi Geislavarna ríkisins og sýndar niðurstöður fyrir einstaka starfsmannahópa.
 

Skoða eldri fréttir