Fréttir

26.4.2006 Fréttir : Kjarnorkuslysið í Tjernobyl, -20 ár liðin

Kjarnorkuslysið í Tjernobyl er alvarlegasta slys sem hefur orðið í kjarnorkuveri. Mikið magn geislavirkra efna dreifðist frá verinu og slysið hefur haft áhrif á nýtingu kjarnorku um allan heim. Deilur eru sagðar um mat á afleiðingum slyssins, þær deilur eru þó minni en ætla mætti því oft endurspegla þær hreinlega mismun í hvað verið er að meta frekar en að mat á því sama sé mismunandi.

Gróðurhúsahrif og vaxandi orkuþörf hafa ýtt undir umræðu um nýtingu kjarnorku. Geislavörnum ríkisins fannst því við hæfi að taka saman stuttan texta um hvað fór úrskeiðis í kjarnorkuverinu í Tjernobyl 1986 og hverjar afleiðingarnar hafa verið.

 

21.4.2006 Fréttir : Viðbúnaður: Rauntímamælingar á geislun aðgengilegar á vef Geislavarna

Styrkur (gamma)geislunar er vaktaður á 4 mælistöðvum á Íslandi og niðurstöður mælinganna hafa verið gerðar aðgengilegar á vefsetri Geislavarna ríkisins. Vöktunin er hluti viðbúnaðar gegn geislavá á Íslandi. Niðurstöður mælinganna sýna náttúrulega bakgrunnsgeislun. Hún er breytileg bæði eftir stað og tíma, t.d. getur úrkoma skolað geislavirkum efnum úr lofthjúpi til jarðar. Íslenskt berg er mjög rýrt af geislavirkum efnum, það er þó mismunandi eftir svæðum hversu lítill styrkurinn er. Stöðvarnar myndu sýna marktæka aukningu ef mökkur geislavirkra efna bærist til Íslands frá kjarnorkuslysi erlendis.
 

11.4.2006 Fréttir : Science of the Total Environment birtir vísindagrein frá Geislavörnum

Hið virta vísindarit, Science of the Total Environment, hefur birt grein starfsmanns Geislavarna um hvernig meta má geislavirkt úrfelli út frá úrkomugögnum. Aðferðin er síðan notuð til að meta dreifingu geislavirks úrfellis (sesín-137) á Íslandi.

 

6.4.2006 Fréttir : Sólgleraugu og sólarvarnaráburður um páskana

Geislavarnir minna á noktun sólgleraugna og sólarvarnaráburðar, einkum fyrir þá sem ætla á skíði um páskana.
 

Skoða eldri fréttir