Fréttir

24.5.2006 Fréttir : Ísland og alþjóðlegir samningar um geislavirkan úrgang

Ísland fullgilti þann 27. janúar 2006 samning um örugga meðferð notaðs eldsneytis og um örugga meðferð geislavirks úrgangs. Samningurinn tók gildi gagnvart Íslandi þann 27. apríl. Dagana 15. – 24. maí var haldinn fundur hjá Alþjóða­kjarn­orkumála­stofnuninni (IAEA), þar sem hvert aðildarríki kynnti, með skýrslu og framsögu í umræðum, hvernig ákvæði samningsins hafa verið uppfyllt. Kynning Íslands var föstudaginn 19. mars og var henni vel tekið.  Var hún talin til fyrirmyndar varðandi kynningu ríkis sem ekki nýtir kjarnorku, en hefur þó gagn af alþjóðlegri samvinnu á þessu sviði.
 

15.5.2006 Fréttir : Geislavarnir í læknisfræði - Tvö nýleg rit frá IAEA

Fyrr á þessu ári gaf Alþjóðakjarnorkumálastofnunin út tvö rit um geislavarnir í læknisfræði. Ritin eru áhugaverð fyrir starfsmenn sem vinna með geislavirk efni við sjúkdómsgreiningu og lækningar.
 

Skoða eldri fréttir