NKS ráðstefna fyrir unga vísindamenn
Ráðstefna á vegum NKS fyrir unga vísindamenn í geislaeðlisfræði, geislaefnafræði, geislavistfræði, geislavörnum og tengdum greinum. Ráðstefnan er haldin í Helsinki 14.-15. desember. Ferðastyrkir er í boði fyrir þá sem eru reiðubúnir að kynna starf sitt og rannsóknir, umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 15. október.
Námskeið um Mælifræði geislavarna
Bilun í tilraunakjarnakljúf í Noregi ? engin geislavirkni slapp til umhverfis
Tilkynning barst í morgun frá Geislavarnastofnun norska ríkisins (NRPA) um að bilun hafi orðið í kjarnakljúf í Kjeller í Noregi. Bilunin virðist hafa leitt til þess að geislavirk efni hafi sloppið út úr hringrás kjarnakljúfsins, en þau sluppu ekki út úr byggingunni enda hún hönnuð til að geta fangað töluverðan leka frá kljúfnum. Íbúar í grenndinni voru því ekki í hættu. Þetta atvik er þó viss álitshnekkir fyrir rannsóknastofnunina sem rekur kjarnakljúfinn og NRPA hefur gert kröfu um það að kljúfurinn verði ekki ræstur að nýju fyrr en komist hafi verið fyrir rætur þessarar bilunar og viðeigandi ráðstafnir gerðar.