Fréttir

30.4.2007 Fréttir : Sameining sænsku geislavarnastofnunarinnar og kjarnorkueftirlitsins

Sænsk stjórnvöld tilkynntu síðast liðinn föstudag, 20. apríl, að þau hyggðust sameina geislavarnastofnun sænska ríkisins (Statens strålskyddsinstitut, SSI) og kjarnorkueftirlitið (Statens kärnkraftinspektion, SKI). Sameiningin mun taka gildi frá og með næstu áramótum.

 

17.4.2007 Fréttir : Ný skýrsla um geislaálag starfsmanna árið 2006, GR07:01

Út er komin árleg samantekt á geislaálagi starfsmanna sem vinna við jónandi geislun á Íslandi. Í skýrslunni er gerð grein fyrir þessum þætti í starfsemi Geislavarna ríkisins og sýndar niðurstöður fyrir einstaka starfsmannahópa.
 

10.4.2007 Fréttir : Fréttabréf European ALARA Network komið út

Á vefsíðu European ALARA Network var nýlega birt fyrsta fréttabréf ársins, þar sem m.a. kemur fram að Ísland er orðið ein af þátttökuþjóðum í þessu samstarfi. Fréttabréfið og eldri fréttabréf má nálgast hérna.
 

2.4.2007 Fréttir : Nýtt leiðbeiningarit um röntgentæki sem notuð eru við leit í farangri og til efnagreininga.

Geislavarnir ríkisins hafa tekið saman fræðslurit um röntgentæki sem notuð eru við leit í farangri farþega á flugvöllum og til efnagreiningar í iðnaði. Í maí n.k. verður haldinn fræðslufundur fyrir notendur þessara tækja, þar sem efni ritsins verður m.a. kynnt
 

Skoða eldri fréttir