Fréttir

28.9.2007 Fréttir : 51.ársfundur Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA)

Dagana 17. til 21. september s.l. var 51.ársfundur Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar haldinn í Vínarborg.
 

19.9.2007 Fréttir : Fræðsluefni um notkun röntgentækja hjá tannlæknum á vefsetri IAEA

Árið 2006 opnaði Alþjóða kjarnorkumálastofnunin (IAEA) nýtt vefsetur með upplýsingum um geislavarnir sjúklinga og síðan hefur birst þar reglulega nýtt efni sem á erindi við fagfólk sem starfar við jónandi geislun. Fyrir stuttu birtist þar efni sem ætlað er fagfólki og almenningi vegna notkunar röntgentækja við tannlækningar.
 

14.9.2007 Fréttir : Norræn ráðstefna - erindi um alþjóðleg þróunarverkefni Geislavarna ríkisins

Einn starfsmanna Geislavarna, Sigurður Emil Pálsson, hefur um árabil stýrt norrænni rannsóknarsamvinnu á sviði viðbúnaðar gegn geislavá og í geislavistfræði. Þann 28.-29. ágúst var haldin ráðstefna í Osló um stöðu verkefna innan þessa samstarfs, hvað hefur áunnist og hvað er framundan. Sigurður flutti 4 erindi, þar af tvö um þróunarverkefni sem Geislavarnir eiga aðild að í samvinnu við erlenda aðila.
 

5.9.2007 Fréttir : Geislun frá farsímum og farsímamöstrum

Talsvert hefur borið á umræðu um hugsanlega hættur vegna GSM-mastra að undanförnu. Að öllum líkindum stafar þetta af því að íslensk símafyrirtæki eru um þessar mundir að fjölga GSM sendum og möstrum vegna svokallaðrar 3. kynslóðar af farsímum en ekki af því að fram hafi komið nýjar óvæntar niðurstöður úr heilsufarsrannsóknum á áhrifum GSM-geislunar á fólk.
 

Skoða eldri fréttir