Fréttir

22.11.2007 Fréttir : Umræða um þráðlaus net í Noregi

Í Noregi hefur að undanförnu nokkuð verið rætt um það hvort útgeislun frá sendum fyrir þráðlaus net geti valdið fólki óþægindum og skaðað heilsu þess. Tilefnið er meðal annars það að í Þrándheimi hefur verið komið upp þráðlausu neti fyrir tölvur.
 

13.11.2007 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2006

Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu með niðurstöðum mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna, „Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2006, GR 07:03“ má nálgast hér á PDF formi.
 

7.11.2007 Fréttir : Nýtt leiðbeiningarit um geislavarnir við notkun fjölsneiða tölvusneiðmyndatækja.

Nýlega birtist á vefsíðu útgefanda (ScienceDirect.com) fyrir Alþjóðageislavarnaráðið (ICRP) (www.icrp.org) nýtt rit um geislavarnir við tölvusneiðmyndarannsóknir (TS). Ritið kemur út á prenti í febrúar á næsta ári, en er núna aðgengilegt á vefnum. Það heitir "Managing Patient Dosis in Multi-Detector Computed Tomography" (Publication 102) sem mætti snúa á íslensku sem "Stjórnun geislaálags við notkun fjölsneiða tölvusneiðmyndtækja". Fjallað er á ítarlega hátt um þá þætti myndgerðarinnar með fjölsneiða tölvusneiðmyndatækjum (FSTS) (e. Multi-Detector Computed Tomography (MDCT)) sem hafa áhrif á geislaálag sjúklinga og hvernig beri að fylgjast með og stjórna þeim.
 

Skoða eldri fréttir