Fréttir

27.2.2008 Fréttir : Fyrirlestur frá Geislavörnum endurtekinn að ósk IAEA

Nýlokið er ráðstefnu í Vínarborg þar sem Ísland var valið til að kynna hvernig smáríki hefur með góðum árangri uppfyllt tilkynningarskyldu sína (sjá frétt frá 20. febrúar). Starfsmaður Geislavarna ríkisins hefur í framhaldi verið beðinn að koma fram sem gestafyrirlesari á námstefnu á vegum IAEA í Bandaríkjunum í maí nk.
 

20.2.2008 Fréttir : Ísland valið til kynningar á ráðstefnu IAEA

Ein meginstoða í starfi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA, er eftirlit með banni við útbreiðslu kjarnorkuvopna og tilheyrandi tækni. Slíkt eftirlit byggir á samningum sem mikilvægt er að öll ríki standi við, jafnt stór sem smá.  Nú (18.-21. febrúar) stendur yfir ráðstefna í Vínarborg þar sem Ísland var valið til að kynna hvernig smáríki hefur með góðum árangri uppfyllt tilkynningarskyldu sína.

 

12.2.2008 Fréttir : Leiðbeiningarit um mælifræði frá IAEA

Fyrir stuttu gaf Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (www.iaea.org) út nýtt leiðbeiningarrit um mælifræði vegna röntgengeislunar í læknisfræðilegri myndgreiningu "Dosimetry in Diagnostic Radiology: An International Code of Practice". Um er að ræða leiðbeiningar þar sem sérfræðingar frá mörgum löndum koma að skrifum og er ritið hliðstætt samskonar riti sem kom út árið 2000 og fjallaði um mælifræði vegna notkunar jónandi geislunar í geislameðferð (e. radiation therapy).
 

Skoða eldri fréttir