Fréttir

25.6.2008 Fréttir : Viðhorfskönnun viðskiptavina 2008

Enn á ný staðfestir viðhorfskönnun ánægju viðskiptavina Geislavarna og veitir mikilvægar upplýsingar um viðhorf þeirra til einstakra þátta í þjónustu stofnunarinnar. Geislavarnir ríkisins hafa síðastliðin 4 ár látið framkvæma viðhorfskönnun meðal viðskiptavina sinna. Könnuninni var sérstaklega beint til þeirra viðskiptavina sem lúta eftirliti stofnunarinnar. Könnunin sem fram fór dagana 19. maí til 02. júní, er liður í mati á framkvæmd og árangri stefnu stofnunarinnar.
 

18.6.2008 Fréttir : Forstjórar Evrópskra geislavarnastofnana funduðu í Frakklandi 19. maí.

Evrópskar geislavarnastofnanir eru að þróa með sér ákveðið samstarf. Á vegum þeirra starfa nú nokkrir starfshópar og einnig hafa forstjórar þeirra fundað tvívegis. Síðasti fundur þeirra var haldinn í París 19. maí.
 

10.6.2008 Fréttir : Ísland með formennsku í NSFS, Norræna geislavarnafélaginu

Forstjóri Geislavarna ríkisins, Sigurður M. Magnússon var nýlega kjörinn formaður Norræna geislavarnafélagsins, NSFS, á ráðstefnu félagsins í Noregi 26.-30. maí 2008. Næsta ráðstefna NSFS verður á Íslandi eftir þrjú ár.
 

5.6.2008 Fréttir : Minniháttar bilun í kjarnorkuveri í Slóveníu

Í gær kom fram minniháttar bilun í kjarnorkuverinu í Krsko í Slóveníu. Upplýsingum um hana var miðlað skjótt til grannríkja og alþjóðastofnana. Þetta endurspeglar framfarir sem hafa orðið á síðari árum í skilvirkri og opinni miðlun upplýsinga um bilanir í kjarnorkuverum.
 

Skoða eldri fréttir