Fréttir

29.9.2008 Fréttir : Nýtt rit frá Alþjóðageislavarnaráðinu - Geislavarnir í læknisfræði

Nýlega kom út hjá Elsevier nýtt rit frá Alþjóðageislavarnaráðinu eða rit númer 105 (ICRP Publication 105) sem ber heitið "Radiation Protection in Medicine" eða geislavarnir í læknisfræði og var það samþykkt til útgáfu í október 2007.
 

26.9.2008 Fréttir : Vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga, nýtt efni

Stöðugt birtast nýjar upplýsingar á þessu vefsetri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA), ásamt því að eldra fræðsluefni er uppfært. Þetta er áhugavert vefsetur fyrir þá sem vinna við jónandi geislun í læknisfræði.
 

15.9.2008 Fréttir : IAEA velur Ísland aftur sem fyrirmynd smáríkja

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) hefur óskað eftir að fá að nota íslenska skýrslu sem fyrirmynd fyrir ríki sem ekki nýta kjarnorku, en þurfa engu að síður að uppfylla kröfur alþjóðlegs samnings um örugga meðferð notaðs eldsneytis og örugga meðferð geislavirks úrgangs. Einnig var vísað til Íslands sem fyrirmyndar fyrr á þessu ári varðandi annan alþjóðlegan samning sem IAEA varðar.
 

5.9.2008 Fréttir : Uppfærðar veftilvísanir um farsíma og heilsu

Geislavörnum ríkisins berast reglulega fyrirspurnir um farsíma og hugsanleg áhrif þeirra á heilsu fólks. Stofnunin hefur því m.a. birt fréttatilkynningar með veftilvísunum í þær heimildir sem umræðan hefur byggst á. Þessar tilvísanir hafa nú verið teknar saman, uppfærðar og settar undir fræðsluefni á vefsetri stofnunarinnar.
 

Skoða eldri fréttir