Fréttir

28.11.2008 Fréttir : Geislavarnir ríkisins hafa fengið vottað gæðakerfi

Geislavarnir ríkisins hafa innleitt gæðakerfi samkvæmt ISO 9001:2000 staðlinum og nýlega fengið það vottað af bresku staðlastofnuninni, British Standard Institute, BSI. Gæðakerfið lýsir markmiðum og starfsemi stofnunarinnar en með vottuninni er staðfest að unnið sé eftir þessari lýsingu. Gæðakerfið er mikilvægt tæki til að bæta og treysta starfsemina.
 

22.11.2008 Fréttir : Geislavirk efni í munaðarlausum tækjum - möguleg vá

Strangar reglur gilda um alla meðferð geislavirkra efna. Við breytingar í rekstri fyrirtækja (eða gjaldþrot) og mannaskipti eykst þó hætta á að öryggisvitneskja fari forgörðum. Við slíkar aðstæður geta geislavirk efni orðið munaðarlaus og tæki sem innihaldanda slík efni farið í brotajárn. Það getur haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar og því brýnt að allir hlutaðeigandi haldi vöku sinni.
 

13.11.2008 Fréttir : Hvalfjarðargöng og geimgeislun

Hvalfjarðargöngin gætu reynst hentugur staður til kvörðunar næmra geislamæla vegna þess hve geislun í þeim er lítil. Þess vegna hafa geislavarnastofnanir á Norðurlöndum nýlega sýnt göngunum áhuga.
 

3.11.2008 Fréttir : 12. Ráðstefna Alþjóða geislavarnafélagsins ( IRPA)

12. ráðstefna Alþjóða geislavarnafélagsins var haldin í Argentínu, 20. - 24. október s.l.. Ráðstefnuna sóttu yfir 1600 sérfræðingar á ýmsum sviðum geislavarna frá meira en 90 löndum.
 

Skoða eldri fréttir