Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2008
Endurvottun á ISO 9001 gæðakerfi Geislavarna ríkisins
Skortur á geislavirkum efnum í læknisfræði - Áhrifin ekki alvarleg á Íslandi
Um nokkurt skeið hefur stefnt í að skortur yrði á geislavirkum efnum sem notuð eru í læknisfræðilegri myndgreiningu, m.a. til að kanna hugsanlega útbreiðslu krabbameins. Undanfarið ár hefur ekki verið hægt að afgreiða til Íslands allt það magn sem pantað var. Það hefur hinsvegar ekki komið að sök af því að vitað var fyrirfram um minnkað magn og hægt var að skipuleggja vinnu eftir því. Einnig hefur dregið úr notkun þessara efna m.a. vegna notkunar segulómtækja.
Norrænir rannsóknastyrkir til Geislavarna ríkisins
Alþjóðlegt námskeið á vegum Geislavarna um eftirlit með tilraunabanni
Norrænar geislavarnastofnanir telja ekki þörf á að draga úr geislun frá farsímasendum
Á Norðurlöndum er geislun á almenning frá farsímasendum, sjónvarps- og útvarpssendum og vegna þráðlauss búnaðar vel undir ráðlögðum alþjóðlegum mörkum. Geislavarnastofnanirnar á Norðurlöndum hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu þar sem segir að ekki sé að svo stöddu þörf á að beita sér sameiginlega til að draga frekar úr geislun frá þessum sendum.
Geislavarnastofnanir Svíþjóðar, Noregs, Finnlands og Íslands mæla með banni við að yngri en 18 ára noti ljósabekki
Geislavarnastofnanirnar fjórar leggja til að sett verði aldursmark þannig að börnum og ungmennum yngri en 18 ára verði bönnuð notkun ljósabekkja. Löggjöf um þetta hefur þegar tekið gildi í ýmsum Evrópulöndum.
Viðmiðunarmörk vegna farsíma óbreytt
Nýtt fréttarit frá EAN-ALARA
53. ársfundur IAEA
Rannsóknir gefa til kynna aukna áhættu sjúklinga vegna röntgenrannsókna
Samnorrænar ráðleggingar um varnir gegn radoni
Nýtt viðmiðunarrit IAEA með framlagi Geislavarna ríkisins
Út er komið nýtt rit hjá IAEA sem markar tímamót í geislavistfræði. Í því eru viðmiðunargildi sem gera mögulegt að meta dreifingu geislavirka efna til umhverfis og í því. Beri geislaslys að höndum, þá er mjög mikilvægt að geta metið afleiðingar þess með alþjóðlega viðurkenndum hætti. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA, gaf fyrir 15 árum út rit með viðmiðunargildum sem hafa verið notuð til að meta áhrif dreifingar geislavirkra efna. Nú er komin út ný og mjög stækkuð útgáfa þessa rits. Starfsmaður Geislavarna ritstýrði einum undirkafla bókarinnar í samvinnu við þrjá aðra.
Aukin áhætta á hjarta- og æðasjúkdómum vegna geislunar?
Afhjúpun leyndardóma múmíanna
Ljósabekkir flokkaðir sem krabbameinsvaldandi
Umræða um húðkrabbamein vegna ljósabekkja
Kjarnrannsóknum fækkar en segulómrannsóknum fjölgar á Íslandi
Læknisfræðilegum rannsóknum þar sem notuð eru geislavirk efni (enska: nuclear medicine) hefur fækkað undanfarin ár á Íslandi, á meðan rannsóknum í segulóm- og sneiðmyndatækjum hefur fjölgað mikið.