Nýjungar í þróun kjarnorkuvera: Fljótandi kjarnorkuver?
Kjarnakljúfar hafa verið notaðir sem orkugjafar í kafbátum og skipum í áratugi. Það þarf því ekki nýja grunntækni til að binda skip eða kafbát við bryggju og nýta orkuna þaðan í landi. Slíkt hefur verið gert í tilraunaskyni og til takmarkaðra nota. Skip hafa hins vegar ekki verið sérstaklega hönnuð og smíðuð sem kjarnorkuver í tengslum við orkudreifikerfi í landi. Ýmsar þjóðir, þ.a.m. Rússar, stefna nú að slíkri nýtingu og af því tilefni gaf Geislavarnastofnun Noregs út skýrslu nýlega með lýsingu á þessari tækni og hugsanlegum afleiðingum notkunar hennar á norðurslóðum.