Fréttir

29.7.2009 Fréttir : Ljósabekkir flokkaðir sem krabbameinsvaldandi

Fyrr í dag birtu Geislavarnir frétt um að Krabbameinsrannsóknastofnunin (IARC) í Lyon væri sögð hafa flokkað ljósabekki sem krabbameinsvaldandi, í stað „líklega krabbameinsvaldandi“ eins og áður. Þegar fréttin var skrifuð í morgun var ekki hægt að sjá staðfestingu þessa á vef IARC. Fréttatilkynning um breytingu flokkunar hefur nú verið birt á vefnum og er því opinberlega staðfest.
 

29.7.2009 Fréttir : Umræða um húðkrabbamein vegna ljósabekkja

Krabbameinsrannsóknastofnunin ( IARC ) í Lyon hefur til þessa flokkað ljósabekki sem „líklega krabbameinsvaldandi“. Geislavarnir hafa ekki upplýsingar um að flokkun hafi verið breytt en með hliðsjón af umfjöllun fjölmiðla í dag, sem m.a. byggja á símtölum við sérfræðinga IARC, getur verið að breyting á flokkun ljósabekkja verði tilkynnt næstu daga þannig að þeir verði flokkaðir sem krabbameinsvaldandi.
 

Skoða eldri fréttir