Fréttir

30.12.2009 Fréttir : Ný skýrsla: Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2008

Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu með niðurstöðum mælinga stofnunarinnar á styrk geislavirks sesíns í andrúmslofti, úrkomu, mjólk, lambakjöti, sjó, fiski og þangi. Styrkur efnisins er í öllum tilvikum langt neðan þeirra marka sem miðað er við í milliríkjaviðskiptum með matvæli. Skýrsluna, „Vöktunarmælingar Geislavarna ríkisins 2008, GR 09:02“, má nálgast hér á PDF formi.
 

16.12.2009 Fréttir : Endurvottun á ISO 9001 gæðakerfi Geislavarna ríkisins

Geislavarnir fengu nú í desember vottun á gæðakerfi stofnunarinnar í annað sinn. Geislavarnir fengu gæðakerfi sitt vottað í fyrsta skipti árið 2008 og er sagt frá því í frétt á vefsíðu stofnunarinnar 28.11.2008. Á sama ári fékk stofnunin hvatningarverðlaun frá fjármálaráðuneyti sbr. frétt frá 15.5.2008, meðal annars vegna innleiðingar á þessu kerfi.
 

11.12.2009 Fréttir : Skortur á geislavirkum efnum í læknisfræði - Áhrifin ekki alvarleg á Íslandi

Um nokkurt skeið hefur stefnt í að skortur yrði á geislavirkum efnum sem notuð eru í læknisfræðilegri myndgreiningu, m.a. til að kanna hugsanlega útbreiðslu krabbameins. Undanfarið ár hefur ekki verið hægt að afgreiða til Íslands allt það magn sem pantað var. Það hefur hinsvegar ekki komið að sök af því að vitað var fyrirfram um minnkað magn og hægt var að skipuleggja vinnu eftir því. Einnig hefur dregið úr notkun þessara efna m.a. vegna notkunar segulómtækja.

 

2.12.2009 Fréttir : Norrænir rannsóknastyrkir til Geislavarna ríkisins

Stjórn Norrænna kjarnöryggisrannsókna ( Nordisk kernsikkerhedsforskning, NKS) hélt fund í Finnlandi þann 25. nóvember 2009. Á fundinum voru samþykktar tillögur um auknar fjárveitingar til rannsókna.
 

Skoða eldri fréttir