Fréttir

25.1.2010 Fréttir : Geislavarnir ná 100 % árangri í alþjóðlegri samanburðarprófun

Geislavarnir ríkisins tóku síðastliðinn desember þátt í samanburðarprófun National Physical Laboratory (NPL), en hún felst í að greina óþekkta blöndu geislavirkra efna. Af þeim 72 rannsóknastofum sem tóku þátt í prófuninni að þessu sinni, þá voru Geislavarnir í hópi þeirra 18 sem fengu umsögnina „Top Lab“ og í hópi þeirra 9 sem fundu öll efnin og tilgreindu rétt magn innan áætlaðra óvissumarka. Þetta er í annað sinn sem stofnunin tekur þátt í þessari árlegu prófun, árangur í fyrra var einnig jafngóður.
 

18.1.2010 Fréttir : Viðbótargeislun á flugfarþega vegna hertra öryggisráðstafana er lítil

Öryggisráðstafanir á flugvöllum hafa verið hertar vegna tilraunar til hryðjuverks í bandarískri flugvél í lok síðasta árs. Á mörgum flugvöllum verður nú tekin upp skimun farþega með öflugri myndgreiningartækni. Eðlilegt er að spurningar vakni um þá geislun sem því kann að fylgja, enda fylgdi mikil geislun gegnumlýsingartækni sem notuð var á fyrri hluta síðustu aldar. Þessari nýju tækni fylgir hins vegar mjög lítil geislun. Deilur um kerfin hafa einkum snúist um þær myndir sem þau skila af sér, ýmsum finnst þær sýna yfirborð líkama farþega of vel.
 

Skoða eldri fréttir