Fréttir

16.3.2010 Fréttir : Nýtt fréttarit frá EAN-ALARA

Nýlega kom út nýtt vefrit á vefsetri ALARA-Network. Þetta er European ALARA Newsletter nr. 26, febrúar 2010.
 

9.3.2010 Fréttir : Eftirlitskerfi CTBTO nýtist til flóðbylgjuviðvörunar

Hnattrænt eftirlitskerfi CTBTO (Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organization) kom að góðum notum þegar jarðskjálfti skók Chile að morgni 27. febrúar sl. Gögn frá um 20 jarðskjálftastöðvum voru send samstundis til viðvörunarmiðstöðva, þ.á.m. í Ástralíu og Bandaríkjunum (Hawaii) og stuðluðu þannig að því að viðvörunum um hugsanlega flóðbylgju var komið áleiðis til Chile og annarra S-Ameríkuríkja, sem og um Kyrrahafssvæðið allt, fyrr en ella. Hnattrænt eftirlitskerfi CTBTO (Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organization) kom að góðum notum þegar jarðskjálfti skók Chile að morgni 27. febrúar sl. Gögn frá um 20 jarðskjálftastöðvum voru send samstundis til viðvörunarmiðstöðva, þ.á.m. í Ástralíu og Bandaríkjunum (Hawaii) og stuðluðu þannig að því að viðvörunum um hugsanlega flóðbylgju var komið áleiðis til Chile og annarra S-Ameríkuríkja, sem og um Kyrrahafssvæðið allt, fyrr en ella.
 

2.3.2010 Fréttir : Vísindarit birtir norræna grein um vanmetin áhrif stýriþátta í viðbúnaðarlíkani

Áhætta af völdum geislavirks úrfellis er í mörgu allt önnur hérlendis en búast mætti við væri reynslu frá öðrum löndum beitt án aðlögunar. Íslenskar aðstæður eru í mörgu frábrugðnar aðstæðum í grannríkjum okkar. Geislavarnir ríkisins hafa lengi átt náið samstarf með samsvarandi stofnunum á hinum Norðurlöndunum um rannsóknir á sviði viðbúnaðar, þar á meðal geislavistfræði. Afrakstur þessa hefur birst í mörgum skýrslum og vísindaritum, nú síðast í grein sem birt hefur verið í Radiation Protection Dosimetry.
 

Skoða eldri fréttir