Lágur styrkur náttúrulegra geislavirkra efna í gosösku
Skömmu eftir upphaf gossins í Eyjafjallajökli tóku að berast fyrirspurnir til Geislavarna ríkisins frá erlendum systurstofnunum um magn náttúrulegra geislavirkra efna í gosöskunni. Út frá jarðfræðilegum upplýsingum mátti strax álykta að styrkurinn væri lítill. Þetta var síðan staðfest með mælingum á öskusýni. Þessum niðurstöðum var dreift til erlendra stofnana í síðustu viku, enda er brýnt að efla sem fyrst skilning á öskunni og dreifingu hennar.
Fundi um mat á ógn vegna slysa í kjarnorkukafbátum frestað út af eldgosi
Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur sem kunnugt er haft alvarleg áhrif á flugsamgöngur í Evrópu. Erlendir þátttakendur tilkynntu hver af öðrum að vegna þess að þeir gætu ekki verið vissir um að komast hingað og héðan á áætluðum tíma, þá gætu þeir ekki sótt fundinn. Það var því ákveðið að festa fundinum fram á haust.
Fundur í Reykjavík um mat á ógn vegna slysa í kjarnorkukafbátum
25 tæki með geislavirkum efnum send til förgunar
Nýlega voru 25 hæðarmælar með geislavirkum lokuðum lindum teknir úr notkun og sendir til förgunar erlendis. Þetta er um fjórðungur slíkra tækja á skrá hjá Geislavörnum ríkisins. Í lokuðum lindum er geislavirka efnið í þéttum lokuðum umbúðum sem einangra það tryggilega frá umhverfinu.