Fréttir

Segulsviđ frá spennustöđvum og raflögnum

28.7.2010

Ađ undanförnu hafa Geislavörnum ríkisins borist margar fyrirspurnir um segulsviđ frá spennustöđvum og raflögnum. Segulsviđ međ 50 riđa tíđni myndast ţegar rafstraumur rennur um raftćki og rafmagnsleiđslur.

Rafsegulsviđ viđ spennustöđvar

Geislavarnir hafa á liđnum árum gert margar mćlingar á segulsviđi viđ spennustöđvar í Reykjavík og nágrenni. Dćmigert er ađ ţétt upp viđ spennustöđ mćlist segulsviđ vel innan viđ 10 µT og ađ í 4 – 6 metra fjarlćgđ frá spennustöđ mćlist ekki aukiđ segulsviđ frá henni.

Alţjóđleg viđmiđunarmörk fyrir almenning eru 100 µT sem er margfalt hćrra en hćsta gildi sem Geislavarnir hafa mćlt.

Rannsókn Geislavarna og Brunamálastofnunar á segulsviđi í íbúđarhúsnćđi

Ađ undanförnu hefur segulsviđ veriđ mćlt í um 140 íbúđum, ađallega í Reykjavík og nálćgum sveitarfélögum en einnig í dreifbýli. Markmiđ rannsóknarinnar var ađ kortleggja styrk segulsviđs í íbúđarhúsnćđi á Íslandi. Međaltal segulsviđs í húsnćđi í ţéttbýli á Íslandi er svipađ og í Svíţjóđ eđa um 0.1 µT. Til samanburđar má geta ţess ađ dćmigert segulsviđ í 10 cm fjarlćgđ frá 700 watta örbylgjuofni í notkun er um 14 µT en í 1 meters fjarlćgđ um 0.3 µT.

Engin dćmi fundust um aukiđ segulsviđ í íbúđarhúsnćđi vegna nálćgra háspennulína eđa spennustöđva.   

Ástćđa ţess ađ Svíţjóđ er höfđ til samanburđar er sú ađ reglur um frágang raflagna á Íslandi eru sambćrilegar viđ reglur ţar.

Rannsókninni er lokiđ og er skýrsla um hana nú til yfirlestrar hjá samstarfsađilum.

Skýrslan verđur gefin út ađ loknum sumarleyfum í lok ágúst.

 

Beiđni um mćlingu á segulsviđi

Sérfrćđingar Geislavarna geta gert mćlingar á segulssviđi sé ţess óskađ og kostar ţađ 20. 000 krónur samkvćmt gjaldskrá settri af heilbrigđisráđuneytinu.

 

Ósk um slíka mćlingu  skal senda međ  tölvupósti á gr@gr.is.