Fréttir

31.8.2010 Fréttir : 29. ágúst alþjóðlegur dagur gegn tilraunum með kjarnorkuvopn.

Á síðasta ári samþykkti allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna með einróma ályktun að 29. ágúst skyldi verða alþjóðlegur dagur gegn tilraunum með kjarnorkuvopn. Eru aðildarríki þar sérstaklega hvött til að efla vitund fólks og fræðslu um afleiðingar tilraunasprenginga og nauðsyn þess að þeim verði endanlega hætt svo takmarkinu um kjarnorkuvopnalausan heim verði náð.
 

27.8.2010 Fréttir : Segulsvið á Íslandi svipað og í Svíþjóð

Geislavarnir ríkisins og Brunamálastofnun hafa nýlega lokið rannsókn á segulsviði í rúmlega 130 íbúðum. Niðurstöður benda til að segulsviðið í íbúðum á Íslandi sé svipað og í Svíþjóð en frágangur raflagna á Íslandi og í Svíþjóð er sambærilegur. Niðurstöðurnar gefa ekki tilefni til umfangsmeiri rannsókna á segulsviði í íbúðarhúsnæði á Íslandi. Meðaltal segulsviðs mældist um 0,1 µT en algengustu gildi eru um 0,05 µT. Segulsvið yfir 0,4 µT er sjaldgæft og stafar oftast af svokölluðum flökkustraumum. Með einföldum aðgerðum má oftast draga úr þessum straumum.
 

13.8.2010 Fréttir : Fjöldi myndgreiningarannsókna á Íslandi árið 2008

Komin er út skýrsla Geislavarna um fjölda myndgreiningarannsókna sem framkvæmdar voru á Íslandi árið 2008. Skýrslan er áfangi í því verkefni stofnunarinnar að meta geislaálag þjóðarinnar vegna notkunar jónandi geislunar í læknisfræði.
 

6.8.2010 Fréttir : Sólgos jók ekki við gammageislun á Íslandi

Að morgni þess 3. ágúst varð sólblossi í stefnu jarðar á sólinni með tilheyrandi stormum í segulsviði jarðar, en það ver jarðarbúa fyrir geimgeislun. Mælingar Geislavarna ríkisins og Veðurstofunnar benda ekki til að geimgeislun á Íslandi hafi aukist við þetta.
 

4.8.2010 Fréttir : Árleg samantekt um geislaálag starfsmanna sem vinna við jónandi geislun, 2009

Árleg samantekt um geislaálag starfsmanna sem vinna við jónandi geislun er komin út fyrir árið 2009. Skýrslan er aðgengileg á vefsetri stofnunarinnar á slóðinni: http://www.geislavarnir.is/stofnunin/skyrslur/ Þar er einnig að finna samskonar skýrslur fyrri ára. Skýrslan er á PDF formi (555 kB). Skýrslan er eingöngu gefin út á rafrænuformi.
 

Skoða eldri fréttir