Fréttir

25.3.2011 Fréttir : Geislavirkni í matvælum í Japan

Geislavarnir ríkisins hafa átt samstarf við Borgaraþjónustu Utanríkisráðuneytisins um ráðgjöf til Íslendinga sem staddir eru í Japan. Í fjölmiðlum undanfarna daga hefur þess verið getið að geislavirk efni hafa mælst í ýmsum matvælum í Japan. Hér er að finna örstutta umfjöllun um hvaða áhætta sé því fylgjandi að vera í Japan með tilliti til neyslu matvæla, ítarlegri umfjöllun fylgir í upphafi næstu viku.
 

25.3.2011 Fréttir : Efni frá Fukushima mælast nú víða í Evrópu, en í óverulegu magni

Örlítið magn geislavirkra efna frá Fukushima kjarnorkuverinu í Japan mældist hérlendis fyrr í vikunni. Þessi efni hafa nú einnig mælst víðar í Evrópu og í heldur meira magni en mældist upphaflega hér. Gildi hérlendis hafa einnig hækkað samsvarandi en sem fyrr er engin ástæða til að óttast heilsufarslegar afleiðingar þessara efna. Um er að ræða örlítið brot af því sem mældist í Vestur-Evrópu eftir slysið í Tjernóbyl árið 1986. Þessi efni valda engri hækkun umhverfisgeislunar.

 

22.3.2011 Fréttir : Ástæðulaust að óttast þótt geislavirkni frá Fukushima mælist hérlendis

Geislavirk efni frá kjarnorkuslysinu í Japan hafa borist til Evrópu og geta Geislavarnir nú staðfest að örlítil manngerð geislavirkni hefur mælst í mælistöð sem stofnunin rekur. Af gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er ástæða til að óttast geislavirkni á Íslandi eða í Evrópu vegna kjarnorkuslyssins í Japan.
 

18.3.2011 Fréttir : Ástand í Japan virðist batnandi - fræðsluerindi um kjarnorkuver

Ástand í kjarnorkuverinu í Fukushima Dai-ichi virðist fara batnandi og að það gangi betur að koma á kælingu. Jafnframt sést að geislun á mælistöðvum víðar í Japan heldur áfram að lækka.  Énn er þó fylgst grannt með framvindu mála, m.a. í samvinnu við Utanríkisráðuneytið og sendiráðið í Japan.
 

17.3.2011 Fréttir : Ástand í Fukushima kjarnorkuveri: Ferðaviðvörun

Í ljósi óvissu um framhald mála í Fukushima Dai-ichi kjarnorkuverinu, þá hefur Utanríkisráðuneytið, að höfðu samráði við Geislavarnir, ráðlagt Íslendingum sem eru staddir á Tókýó svæðinu eða fyrir norðan Tókýó að íhuga að flytja sig suður á bóginn þar til aðstæður skýrast. Sem fyrr er ekki búist við að heilsufarslegra áhrifa vegna geislunar gæti á þessu svæði, jafnvel þótt töluvert magn geislavirkra efna myndi losna frá kjarnorkuverinu.
 

16.3.2011 Fréttir : Áframhaldandi vandamál við að ná tökum á kælingu kjarnakljúfa

Það hefur enn ekki tekist á ná tökum á kælingu kjarnakljúfanna í Fukushima Daiichi kjarnorkuverinu og í geymslulaugum fyrir notað eldsneyti. Til viðbótar kemur að styrkur geislunar hefur aukist og síðan fallið aftur, væntanlega vegna þess að eitthvað af geislavirkum efnum hafi sloppið út tímabundið. Við það hafa starfsmenn þurft að hörfa, en síðan komið aftur. 
 

15.3.2011 Fréttir : Japan: Geislavirk efni berast til andrúmslofts í kjölfar eldsvoða í geymslu f. geislavirkan úrgang

Í nótt kom upp eldur í geymslu fyrir geislavirkan úrgang og var hann síðar slökktur. Á svipuðum tíma jókst styrkur geislunar á svæðinu, en dvínaði síðan aftur.  Orsökin er væntanlega að geislavirk efni hafi dreifst til andrúmslofts vegna eldsvoðans.  Þetta getur leitt til mælanlegrar aukningar geislunar á víðu svæði, en heilsufarsleg áhætta verður væntanlega mjög staðbundin.
 

14.3.2011 Fréttir : Ástand kjarnorkuvera í Japan í kjölfar jarðskjálftans (framhaldsfrétt)

Í nótt varð sprenging af völdum vetnis í byggingu kjarnakljúfs númer 3 í Fukushima Dai-ichi kjarnorkuverinu. Varað hafði verið við því að slík sprenging gæti orðið. Ekkert bendir til að skemmdir hafi orðið á kjarnakljúfnum. Magn geislavirkra efna innan kjarnakljúfanna rýrnar ört og það er ekki tilefni til að ætla að geislavirk efni losni frá verinu til umhverfis í umtalsverðu magni.  Geislavarnir munu fylgjast áfram með ástandinu í samvinnu við erlendar stofnanir.  Samráð er haft við Borgaraþjónustu Utanríkisráðuneytis, Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Veðurstofu Íslands.
 

13.3.2011 Fréttir : Enn alvarlegt ástand í kjarnorkuveri í Japan (framhaldsfrétt)

Vandamál er nú vegna kælingar á kjarnakljúf númer 3 í Fukushima-1 í Japan og þar til það hefur verið leyst telst ástand alvarlegt. Upplýsingar gefa þó ekki tilefni til að ætla að þetta leiði til að geislavirk efni losni til umhverfis í umtalsverðu magni, ekki frekar en gerðist fyrir kljúf númer 1. Varað hefur verið við að sprenging geti orðið, en hún er ekki líkleg til að hafa áhrif á sjálfan kjarnakljúfinn. Samanburður á mati Geislavarna við mat annarra norrænna geislavarnastofnana leiðir í ljós að það er sambærilegt.
 

12.3.2011 Fréttir : Vaxandi áhyggur af kjarnorkuverum í Japan (framhaldsfrétt)

Rétt fyrir kl. 8 í morgun bárust fréttir af einhvers konar sprengingu í Fukushima 1 kjarnorkuverinu. Hér verður skýrt nánar um hvers konar vanda er væntanlega að ræða í kjarnorkuverunum. Bætt verður við þessa lýsingu eftir því sem meiri upplýsingar berast í dag.
 

11.3.2011 Fréttir : Viðbúnaður vegna áhrifa jarðskjálfa á kjarnorkuver í Japan

Í nótt varð mjög sterkur jarðskjálfti í Japan og hefur hann haft víðtæk áhrif. Hann olli meðal annars skemmdum á kælikerfi kjarnorkuversins í Fukushima Dai-ichi. Neyðarástandi var lýst yfir tímabundið í varúðarskyni, en því hefur nú verið aflétt. Geislavarnir ríkisins munu fylgjast með þróun mála í kjarnorkuverinu í samráði við norrænar geislavarnastofnanir og nýta upplýsingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) og annarra alþjóða stofnana. Að auki er samstarf við Borgaraþjónustu Utanríkisráðuneytis.
 

7.3.2011 Fréttir : Nýtt vefsetur um geislavarnir

HERCA, samtök evrópskra geislavarnastofnana, hafa hleypt af stokkunum vefsetri þar sem ætlunin er að kynna niðurstöður samstarfsverkefna og sameiginleg álit um geislavarnir. Til grundvallar starfinu eru tilskipanir Evrópusambandsins um geislavarnir sem byggjast á Euratom samningnum og það markmið að samræma laga- og regluverk um þennan þátt í Evrópu.
 

Skoða eldri fréttir