Fréttir

20.4.2011 Fréttir : Mælingar á geislavirkni í svifryki yfir Reykjavík

Geislavarnir birta hér með gögn frá mælingum á geislavirkni í svifryki yfir Reykjavík. Gögnin sýna að lítið magn af manngerðum geislavirkum efnum, sem rekja má til kjarnorkuslyssins í Japan, hefur borist til landsins.
 

18.4.2011 Fréttir : Ljósabekkjum í Reykjavík fækkar enn

Samkvæmt nýrri talningu Geislavarna ríkisins eru ljósabekkir hjá sólbaðsstofum á höfuðborgarsvæðinu núna 76 talsins en voru nærri tvöfalt fleiri árið 2005 eða 144.

 

12.4.2011 Fréttir : Kjarnorkuverið í Fukushima - endurmat japanskra yfirvalda

Japönsk yfirvöld gáfu í morgun út tilkynningu um að slysið í kjarnorkuverinu í Fukushima hefði verið endurmetið og teldist nú í þrepi 7 á svonefndum INES kvarða, sem notaður er til að meta hversu alvarleg geislunarslys eru. Þetta þýðir EKKI að áhætta sé talin meiri en áður var, kvarðanum er ætlað að meta það sem orðið er og honum er EKKI ætlað að meta áhættu vegna þess sem gæti orðið. Endurflokkunin þýðir því enga breytingu á viðbúnaðarstigi. Hún byggir á mati á hversu mikið af efnum hafi losnað til umhverfis, ekki á heilsufarslegum afleiðingum.
 

8.4.2011 Fréttir : Nýtt fréttarit frá EAN-ALARA

Nýlega kom út nýtt vefrit á vefsetri ALARA-Network. Þetta er European ALARA Newsletter nr. 28, mars 2011. Í þessu riti er fjallað um geislavarnir í læknisfræði, notkun geislunar í iðnaði (ekki kjarnorkuiðnaði), í öryggisgæslu og fleira.
 

Skoða eldri fréttir