Nýlega sendi stofnunin frá sér nýjar leiðbeiningar um geislavarnir við notkun á sérhæfðum röntgentækjum, svokölluðum
Cone Beam Computed Tomography tækjum, sem mest eru notuð í tannlæknisfræði. Um er að ræða nýja tegund röntgentækja, en einnig nýja útfærslu á eldri myndgerða-aðferðum. Í leiðbeiningunum eru teknar saman þær kröfur og leiðbeiningar sem snúa að þessari tegund tækjabúnaðar og notkun. Til viðmiðunar við gerð þessara leiðbeiningar voru hafðar leiðbeiningar frá Evrópusambandinu og reglur frá Noregi, Danmörku og Bretlandi.