Fréttir

11.7.2011 Fréttir : Vísinda- og tækniráðstefna CTBTO í Vínarborg

Nýlokið er í Vínarborg vísinda- og tækniráðstefnu þar sem fjallað var um hvernig eftirlitskerfi CTBTO annars vegar og framfarir í vísinda-, tækni- og viðbúnaðarsamfélaginu hins vegar geta nýst á báða bóga.

 

6.7.2011 Fréttir : Ljósabekkjabann ber árangur

Stórlega hefur dregið úr notkun grunnskólanemenda á ljósabekkjum samkvæmt nýrri könnun Capacent-Gallup.

 

1.7.2011 Fréttir : Árleg samantekt um geislaálag starfsmanna sem vinna við jónandi geislun, 2010

Árleg samantekt um geislaálag starfsmanna sem vinna við jónandi geislun er komin út fyrir árið 2010. Skýrslan er aðgengileg á vefsetri stofnunarinnar hér. Þar er einnig að finna eldri skýrslur um geislaálag starfsmanna. Skýrslan er á PDF formi (1,5 MB) og er eingöngu gefin út á vefsetri stofnunarinnar.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir meðalgeislaálagi og hópgeislaálagi einstakra starfsstétta sem verða fyrir jónandi geislun við störf sín og starfsmanna innan tiltekinna starfssviða. Einnig er sýnd þróun í meðalgeislaálagi og hópgeislaálagi undanfarin ár.

 

Skoða eldri fréttir