Fréttir

17.8.2011 Fréttir : Ráðstefna Norræna geislavarnafélagsins í Reykjavík í næstu viku

Dagana 22.- 25. ágúst næstkomandi heldur Norræna Geislavarnafélagið ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík undir yfirskriftinni „Áskoranir og tækifæri“ (í geislavörnum). Um 140 þátttakendur, þar á meðal virtir fulltrúar frá alþjóðlegum stofnunum, hafa þegar skráð sig. Þó eru nokkur sæti enn laus.
 

11.8.2011 Fréttir : Ráðstefna á Íslandi um mat á ógn vegna slysa í kjarnorkukafbátum

Í október í fyrra var haldinn alþjóðlegur fundur í Reykjavík þar sem kynntar voru tæknilegar upplýsingar sem nota þarf til að meta áhættu vegna slysa í kjarnorkukafbátum og öðrum kjarnorkuknúnum farartækjum (t.d. skipum). Venjulega hvílir mikil leynd yfir upplýsingum af þessum toga og því er mikilvægt fyrir borgaralegar stjórnsýslustofnanir að hafa almennt viðurkennd tæknileg viðmið sem unnt er að vísa til í úttektum. Þessum fundi er nú fylgt eftir með alþjóðlegri ráðstefnu 25.-26. ágúst. Geislavarnir ríkisins sjá um framkvæmd ráðstefnunnar í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands og meðal þátttakenda eru ýmsir sérfræðingar frá Norðurlöndum og Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni, IAEA.
 

9.8.2011 Fréttir : Nýlega var vefsetur IAEA um geislavarnir sjúklinga og almennings uppfært.

Nýlega bættist við nýtt efni á vefsetri IAEA um geislavarnir sjúklinga. Um er að ræða fræðsluefni fyrir sjúklinga og almenning, um notkun jónandi geislunar í læknisfræði .
 

Skoða eldri fréttir