Fréttir

29.12.2011 Fréttir : Eldur í rússneskum kjarnorkukafbáti - engin geislavá

Fréttir hafa borist í dag af eldi í rússneskum kjarnorkukafbáti, þar sem hann er í slipp vegna viðhalds, í Murmansk í norðurhluta Rússlands.  Skv. fregnum hafa engin geislavirk efni sloppið til umhverfis og ekki er ástæða til að ætla að svo verði.  Geislavarnir ríkisins fylgjast með þessu máli í samvinnu við systurstofnanir á Norðurlöndum.
 

13.12.2011 Fréttir : Ísland tekur við formennsku í Samtökum evrópskra geislavarnastofnana.

Á fundi forstjóra evrópskra geislavarnastofnana í Bern þann 8. desember var Sigurður M Magnússon forstjóri Geislavarna ríkisins kjörinn formaður samtaka þeirra til þriggja ára og tekur hann við formennskunni 1. janúar 2012.
 

8.12.2011 Fréttir : Ráðstefnurit NSFS ráðstefnunnar í sumar nú á vefnum.

Í sumar skipulögðu Geislavarnir ríkisins ráðstefnu Norræna geislavarnafélagsins undir yfirskriftinni "Áskoranir og tækifæri í geislavörnum". Ráðstefnurit með tugum kynninga (munnleg erindi og veggspjöld) hefur nú verið gert aðgengilegt á vefsíðu félagsins, sjá http://nsfs.org/NSFS-2011
 

Skoða eldri fréttir