Fréttir

28.2.2012 Fréttir : Enn er ástæða til að fylgjast með ósonlagi og ÚF-geislun

Á nýafstaðinni ráðstefnu um óson kom fram að ósonlagið á norðurslóðum hefði mælst mjög þunnt á síðasta ári. Þá mældist óvenju hár ÚF-stuðull (e. UV-index) með gildið 7 yfir Finnlandi
 

23.2.2012 Fréttir : Geislavirkni í kúamjólk á Íslandi - vísindagrein

Vísindaritið Environmental monitoring and assessment hefur birt grein um niðurstöður rannsóknar Geislavarna ríkisins á tilfærslu geislavirka efnisins sesín-137 frá jarðvegi og í mjólk. Rannsóknin byggir á vöktunargögnum stofnunarinnar og gögnum sem var aflað á grunni norrænna rannsóknastyrkja. Sesín-137 er manngert efni sem dreifðist um alla jörðina í kjölfar tilrauna með kjarnorkusprengingar í andrúmsloftinu, en bundinn var endi á þær að mestu leyti árið 1963. Heilsufarsleg áhrif þessa efnis eru hverfandi, en það er mikilvægt að hafa skilning á hegðun þess í íslensku vistkerfi, t.d. til að geta metið áhrif slyss sem myndi leiða af sér meira úrfelli.
 

6.2.2012 Fréttir : Bilun orsök hárra mæligilda í mælistöð Geislavarna í Reykjavík

Undanfarna viku hafa sést nokkrir toppar í mæligögnum frá síritandi og sjálfvirkri geislamælistöð Geislavarna í Reykjavík. Þar sem gögnin eru birt á heimasíðu Geislavarna án tafar hafa þau ekki verið yfirfarin fyrir birtingu, og því geta þau sýnt niðurstöður sem hafa ekkert með dreifingu geislavirkra efna í umhverfi að gera. Sú var reyndin í síðustu viku, en athugun á mæligögnunum og aðrar mælingar sem gerðar voru í Reykjavík á sama tíma sýna ekki aukningu geislunar. Það er niðurstaða Geislavarna að hér hafi verið um bilun í rafeindabúnaði að ræða. Stöðin verður tekin niður og yfirfarin á næstu dögum.
 

Skoða eldri fréttir