Fréttir
Bresk samtök vilja banna unglingum innan 16 ára að nota ljósabekki
Í frétt á vef BBC, er sagt að bresk samtök um krabbameinsrannsóknir og samtök sólbaðsstofueigenda, TSA hafi sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um að banna eigi börnum undir 16 ára aldri að nota ljósabekki. Sjá fréttina: http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/3550281.stm
Ástæðan er aukin hætta á húðkrabbameini hjá ungu fólki. Umædd samtök sólbaðsstofueigenda, TSA eru í forsvari fyrir um fjórðung sólbaðsstofueigenda í Bretlandi.