Fréttir

NRPB mælir með alþjóðlegum viðmiðum fyrir styrk rafsegulsviðs

1.4.2004

Geislavarnarráð Bretlands ( NRPB ) hefur mælt með því að viðmið Alþjóða geislavarnaráðsins fyrir ójónandi geislun ( ICNIRP ) varðandi styrk rafseglulsviðs verði tekin upp í Bretlandi. Viðmiðin takmarka styrk þess rafsegulsviðs sem fólk má verða fyrir. Viðmiðin taka til rafsegulsviðs á bilinu 0 - 300 GHz og taka því til rafsegulsviðs vegna útsendinga útvarps og sjónvarps, notkunar farsíma og flutnings rafmagns með háspennulínum auk notkunar raftækja.

Viðmið ICNIRP hafa þegar verið tekin upp í mörgum löndum Evrópu og eru grunnur að reglusetningu Evrópusambandsins um rafsegulsvið.

Viðmið Geislavarna ríkisins fyrir styrk rafsegulsviðs byggja á viðmiðum ICNIRP.

Sjá nánar frétt á vef NRPB, 31. mars.