Fréttir

Fjórði hver unglingur fór í ljós á síðasta ári

5.4.2004

Í könnum sem IMG Gallup hefur gert kemur í ljós að um 24% unglinga á aldrinum 12-15 ára fóru í ljós á síðustu tólf mánuðum. Einnig virðist sem notkun ljósabekkja sá almennt meiri á Íslandi en í nálægum löndum. Sjá nánar könnun á notkun ljósabekkja:

http://www.krabb.is/2004frettir/0401gallup.htm

Könnunin var gerð í tengslum við fræðsluátakið "Hættan er ljós" á vegum Geislavarna ríkisins, Landlæknisembættis, Krabbameinsfélagsins og Félags húðlækna. Í auglýsingu sem nýlega birtist í dagblöðum var sérstaklega varað við því að fermingarbörn færu í ljós. Sjá nánar áskorun til foreldra fermingarbarna:

http://www.krabb.is/2004frettir/0310ljos.htm