Fréttir

Nýtt rit um geislavarnir á heimasíðu Evrópusambandsins

Leiðbeiningarit um geislavarnir í tannlækningum

13.4.2004

Ítarlegt leiðbeiningarit um geislavarnir vegna notkunar röntgengeislunar hjá tannlæknum, sambland af klínískum leiðbeiningum og upplýsingum um geislun og áhættu af hennar völdum.

Nýlega koma út rit um geislavarnir vegna notkunar röntgengeislunar í tannlækningum. Ritið heitir: “European Guidelines on Radiation Protection in Dental Radiology. The Safe Use of Radiographs in Dental Practice”, RP 136, European Commission 2004.

 

Hér er um að ræða mjög ítarlegt leiðbeiningarit vegna notkunar röntgengeislunar hjá tannlæknum, sambland af klínískum leiðbeiningum og upplýsingum um geislun og áhættu af hennar völdum. Tekið er mið af gildandi geislavarnatilskipunum í Evrópusambandinu: 

  1. Directive 96/29/Euratom, of 13. May 1996, “Basic Safety Standard Directive”
  2. Directive 97/43/Euratom, of 30. June 1997. “Medical Exposure Directive”

Sérstaklega er tekið fram að hér er um leiðbeiningarrit er að ræða. Innihald þess setur því ekki neinar takmarkanir varðandi almenna notkun. Markmið ritsins er að veita ítarlegar upplýsingar um alla notkun, þekkingu og tiltæka tækni á þessu sviði. Helstu þættir þessa rits eru:

  1. Geislaskammtar sjúklinga og áhætta
  2. Réttlæting rannsókna og klínískar leiðbeiningar
  3. Áhrif tæknilegra þátta á geislaskammta sjúklinga
  4. Gæðaviðmiðanir og gæðaeftirlit
  5. Geislavarnir starfsfólks

Ritið er hægt að hlaða niður heild sinni af vefsíðu EU, það er 115 síður og  2630kB,  slóðin er:  European Guidelines .. Dental Radiology