Fréttir
Ráðstefnurit um notkun jónandi geislunar í réttarfars- og tryggingarlegum tilgangi
Medico-legal exposures, exposures with ionising radiation without medical indications, RP 130
Ráðstefnurit alþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin var að frumkvæði Evrópusambandsins um siðfræðilegar og lagalegar hliðar þess að nota jónandi geislun í réttarfars- og tryggingalegum tilgangi.
Nýlega kom út á geislavarnavef Evrópusambandsins (EU) ráðstefnurit alþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin var dagana 4. -6. September 2002, í Dublin á Írlandi. Á ráðstefnunni, sem haldin var að frumkvæði EU, var fjallað um notkun jónandi geislunar á fólk í öðrum tilgangi er læknisfræðilegum, þ.e.s. tilgangurinn er ekki sjúkdómsgreining eða læknismeðferð sem snýr beint að þeim sem fyrir geisluninni verður. Um er að ræða notkun geislunar af tollyfirvöldum, við innflytjendaeftirlit, í réttarfarslegum tilgangi, í íþróttum, í tryggingarmálum og við fleiri aðstæður. Á ráðstefnunni var sagt frá vandamálum sem upp hafa komið og þau skoðuð frá ýmsum hliðum, s.s. siðferðilegum, lögfræðilegum, þjóðfélagslegum og tæknilegum.
Ritið er 104 síður (5901KB). Slóðin er þessi : RP - 130