Fréttir

Geislavarnir ríkisins fagna 90% minnkun losunar Tc-99 frá Sellafield

23.4.2004

Bresk stjórnvöld hafa tilkynnt að hafin verði hreinsun á geislavirka efninu Tc-99 sem um árabil hefur verið veitt út í Norður-Atlantshaf. Með nýjum hreinsunabúnaði minnkar magn sem veitt er út í hafið um 90%.

Íslensk stjórnvöld hafa ásamt stjórnvöldum annarra norrænna ríkja og stjórnvöldum í Írlandi mótmælt losun geislavirkra efna frá Sellafield sem leitt hefur til mælanlegrar aukningar í norðurhöfum sem þó er ekki talin vera hættuleg lífríki.

Geislavarnir ríkisins fagna þessum málalokum.

Sjá nánar fréttir Morgunblaðsins og BBC

http://news.bbc.co.uk/1/hi/england/cumbria/3647713.stm

http://www.mbl.is/mm/frettir/show_framed_news/?nid=1081352&cid=1