Fréttir

Geislavarnir fyrir hjartalækna, námsstefna í Vín

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hvetur til varkárni við framkvæmd hjartaþræðinga

17.5.2004 Tenging til IAEA

Dagana 6. - 7. maí s.l. komu saman hjartalæknar frá 25 löndum til þess að fræðast um það hvernig minnka megi hættu á geislasköðum við framkvæmd hjartaþræðinga og hvernig skuli þekkja og meðhöndla slíka skaða.

Dagana 6. og 7. maí sl. hélt Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA) námsstefnum fyrir hjartalækna frá 25 löndum, þar sem þeir voru fræddir um hættuna á geislasköðum við framkvæmd tiltekinna hjartaþræðingarannsókna og -aðgerða. Fjallað var um vaxandi tíðni slíkra skaða, um fyrirbyggjandi aðgerðir, um greiningu og meðhöndlun þeirra.

Sjá nánar á vefsíðu IAEA : http://www.iaea.org/NewsCenter/News/2004/heartpatients.html