Fréttir
Rýrt úran (skert úran)
Efni tekið saman vegna notkunar á rýrðu úrani í hernaði
Uppfært: 20.03.2003
Rýrt úran
(enska: depleted uranium skammstafað DU, þýðingin „skert úran“ hefur einnig verið notuð)
Efni tekið saman vegna notkunar á rýrðu úrani í hernaði. Rætt hefur verið um hugsanlegar heilsufarslegar afleiðingar af notkun þess. Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna birti 13. mars 2001 skýrslu með niðurstöðum rannsóknar sinnar á þessu máli „Depleted Uranium in Kosovo. Post-Conflict Environmental Assessment“. Fjallað er um niðurstöður skýrslunnar hér að neðan, en fyrst er skýrt stuttlega hvað rýrt úran er og í hverju áhætta af þess völdum er fólgin.
Hvað er rýrt úran?
Úran er náttúrulegt frumefni og finnst í jarðvegi og bergi. Eins og það finnst í náttúrunni er það blanda þriggja samsæta:
| úran-238 | 99.28% | (helmingunartími = 4,510,000,000 ár) |
| úran-235 | 0.72% | (helmingunartími = 710,000,000 ár) |
| úran-234 | 0.0057% | (helmingunartími = 247,000 ár) |
Í kjarnorkuiðnaði er blöndu samsætanna breytt til þess að fá aukinn hlut úrans-235, sem hentar betur fyrir flesta kjarnorkuofna (og einnig í kjarnorkuvopn). Er þá talað um að úranið sé auðgað (enska enriched) því blandan er þá auðugri af úrani-235. Þetta aukna magn úrans-235 er fengið úr öðrum skammti af úrani, sem verður þá fyrir bragðið rýrari af úrani-235. Er þá talað um rýrt úran (enska depleted uranium, skammstafað DU)
Dæmigerð samsetning af rýrðu úrani sem notað er í vopn er:
| úran-238 | 99.8% |
| úran-235 | 0.2% |
| úran-234 | 0.001% |
Hafi endurunnið úran (úr kjarnorkuiðnaði) verið notað, þá getur einnig bæst við örlítið magn annarra geislavirkra efna.
Heilsufarsleg áhætta vegna notkunar á rýrðu úrani
Heilsufarslegri áhættu vegna úrans má skipta í tvennt:
- Efnafræðileg áhætta
- Áhætta vegna geislunar frá efninu
Efnafræðileg áhætta
Efnafræðileg áhætta er sú sama frá öllum samsætum úrans, þær hafa allar sömu efnafræðilega eiginleika. Rýrt úran hefur því nákvæmlega sömu efnafræðilega eiginleika og náttúrulegt úran. Mikið magn úrans getur haft skaðleg áhrif á líkamann eins og aðrir þungmálmar, t.d. getur það haft áhrif á starfsemi nýrna. Töluvert af efninu þarf þó að berast inn í líkamann til þess að slík áhrif komi fram.
Áhætta vegna geislunar
Áhætta vegna geislunar getur verið tvenns konar. Annars vegar getur verið um ytri geislun að ræða (frá efni utan líkamans), t.d. ef úranklumpur er settur í vasa og er þar í langan tíma. Hins vegar getur verið um innri geislun að ræða (frá efnum sem berast inn í líkamann), t.d. sem rykagnir ofan í lungu.
Rýrt úran sendir minna af geislun frá sér en náttúrulegt úran, enda er búið að minnka hlut geislavirkari samsæta úrans.
Niðurstöður skýrslu Umhverfisnefndar Sameinuðu þjóðanna
(United Nations Environment Programme, UNEP)
Nokkur skot úr rýrðu úrani fundust og voru þau að stofni til úr úrani-238. Einnig fundust leifar geislavirkra efna sem gáfu til kynna að endurunnið úran hefði verið notað. Magn þessara efna var hins vegar það lítið að það skiptir ekki máli varðandi áhættu af völdum efnisins.
Engin útbreidd mengun af völdum rýrðs úrans fannst. Það var hins vegar að finna á mörgum stöðum, en áhætta vegna mengunar jarðvegs og gróðurs er almennt talin hverfandi lítil.
Í skýrslunni er þó bent á að við tilteknar aðstæður geti áhætta eða mengun farið yfir viðmiðunarmörk. Því er mælt með vissum aðgerðum til þess að draga sem mest úr þessari áhættu.
Frekari upplýsingar og tengingar varðandi rýrt (skert) úran.