Fréttir
Virt vísindarit, Journal of Environmental Radioactivity, birtir grein starfsmanna Geislavarna um geislavirkt sesín (Cs-137) í íslenskum eldfjallajarðvegi
Höfundar eru Magnús Á. Sigurgeirsson, Ólafur Arnalds, Sigurður Emil Pálsson, Brenda J. Howard og Kjartan Guðnason. Íslenskur eldfjallajarðvegur hefur í mörgu aðra eiginleika en þær jarðvegsgerðir sem algengar eru erlendis. Eitt varasamasta efnið í geislavirku úrfelli er geislavirkt sesín (Cs-137) og íslenskur eldfjallajarðvegur bindur það ekki eins fast og margar aðrar jarðvegsgerðir gera. Sesínið getur því verið aðgengilegt plöntum í langan tíma eftir úrfelli og áhrifa þess gætt lengur og meir en ella.
Greinin mun birtast í prentuðu hefti ritsins á næsta ári, en hún var gerð aðgengileg á Vefnum 30. nóvember. Hana má t.d. nálgast í gegnum vef Hvar.is.
Bein krækja í greinina Radiocaesium fallout behaviour in volcanic soils in Iceland